- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / II. Sendibréf, Ritgerðir o. fl. /
279

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 279 —

Nafnið Cormac kemur oft fyrir; t. a. m.
Cor-mac mac Cuillenáin, konungur í Munster, er dó 908.

Mýrkjartan íra-konungur (Muirchertach) var
sonur Njáls (Niall) glúnduff og réði fyrir Ulster.
Hann átti margar orustur við Dani, er herjuðu
ír-land um þær mundir. I Árásabók O’Clery’s (The
book of Invasions) segir svo, að Mýrkjartan hafi
unnið sigur á Dönum í Ulster, og annan við Dyflinni
með Donogh konungi; síðan hafi hann farið yfir
ír-land með einvalaliði af her beggja þeirra og
skatt-gj.lt þar alla smákonunga og tekið af þeim gisla;
Jiafi lið hans á heimleiðinni boðið honum að setjast
um Taraborg og þröngva Donogh yfirkonungi til að
selja honum gisla. Þessu neitti hann ekki að eins,
heldur sendi hann alla þá gisla, er hann hafði tekið
af smákonungum, til Donogh, sem hins rétta
yfir-konungs í landinu. Donogh fannst svo mikið um
þetta, að hann sendir Muirchertach aftur gislana,
og kveður hann maklegastan að halda því, er honum
\^ar í hendur selt. Þess getur Cormacan, hirðskáld
hans, í drápu þeirri, er hann orti um þessa herför;
sú drápa er 156 erindi, og er þetta upphaf að:

Ó, Mýrkjartan, sonur hins ágæta Njáls,
þú, sem hefir tekið gisla af Fjallar-ey.

Skáldið Cormacan Ecces dó 941.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:12 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/2/0287.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free