Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 309 —
Afgørelse" (Bøders Erlæggelse foruden Dom) i
Til-fælde af Forseelsens Gentagelse bör have samme
Virkning som om den paagældende var ved Dom
funden skyldig", og ætlast því berlega til, að fullar
bætur hafi i það minnsta verið krafðar fyrir þau
áð-ur drýgðu brot, fyr en nokkur geti dæmzt til að þola
fullkomið straff fyrir þriðja hórbrot. Það er líka
vist, að sé það löggjafarans meining, — og hver
skyldi efast um það? — að leggja straff við
afbrot-um, ekki til að hefnast á þeim seku, heldur til að
að-vara þá og aftra þeim frá nýrri yfirtroðslu laganna,
þá er það hans vilji, að straffið aldrei skerpist um
skör fram, og einungis þá, þegar raun gefur vitni,
að sú áður gefna ráðning var ónóg til að verka það,
sem skyldi. Þessari reglu sýnist samt ekki hafa verið
fylgt í dómi þess ákærða, Friðfinns; hann hafði
áð-ur alls einu sinni verið sektaður með 6 rd. 48 sk.,
út-látum, og nú er hann strax á eftir orðalaust dæmdur
til 30 vandarhagga refsingar, samboðið 2 ára
tukt-húserfiði; en mér virðist það vera að hlaupa yfir;
myndi þá ekki hafa verið gjörlegt að reyna fyrst,
hvort mildari trappa hórstraffsins ekki gæti hrifið
til að spekja hann? 1 það minnsta virðist sá
fram-gangsmáti samkvæmur laganna anda í flestum
til-fellum, hvar upp-á eg einungis leyfi mér að færa til
dæmis N. L. 2-9—8-11, 6—13—25 og kongsbr. af
25. Júlí 1808, § 7, 11—13, samanborið við
kongs-bréfin af 1. Febrúar og 20. Desember 1799. — Þetta
sé sagt um héraðsdómsins ástæður.
í tilliti til hins, sem actor hefir tilfært, að hér sé
in casu delictum iteratum, en ekki continuatum, bið
eg mætti aðgætast, að það er ljóst af málsins
gjörð-um í héraði, eins og actor nefnir sjálfur í innleggi
sinu, að bæði Friðfinns seinustu brot eru skeð í
sömu andránni, að kalla má, áður en lögsókn var
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>