Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 334 —
Að öllu þessu athuguðu virðist mér þeim ákærða,.
Sumarliða, ekki hæfi nein þung refsing fyrir
yfir-sjón sína, og þar eð kongsbréfið frá 3. Mai 1816
hefir leyft, að dómarar eftir málsins kringumstæðum
ákvarði hæfilega vandarhagga-refsingu fyrir öll þau
afbrot, sem nema minna en 3 ára tugthúsvinnu,
virð-ist mér þetta leyfi vel brúkað, ef þessum hávísa rétti
þóknaðist að takmarka svo straff Sumarliða, að
hann ekki liði meir en 20 vandarhagga aga.
Að endingu bið eg mér mætti leyfast að geta þess,
að laun málfærslumannanna í héraði virðast æði hátt
sett, bæði með tilliti til fjárhags Sumarliða, eftir
því sem næst verður komizt af aktinum, og lika til
hins, er almennt viðgengst með upphæð þess háttar
launa við héraðsþing; og set eg því undirgefnast til
þessa hávísa réttar álits, hvort ekki sé tilhlýðilegt
að lækka þau allt til helminga.
Að svo fyrirmæltu verður það mitt auðmjúkt
upp-ástand: að Sumarliði Sveinsson straffist með
tutt-ugu vandarhagga aga, borgi kindina úr
Arnarhóls-rétt og svari málsins löglega kostnaði.
Innlæt eg svo málið til dóms.
Reykjavik, þann 14. Apríl 1832,
undirgefnast
J. Hallgrimsson.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>