- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / II. Sendibréf, Ritgerðir o. fl. /
374

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 374 —

1842. — Ehr. var í eigu Boga Th. Melstedsj tilheyrir nú kgl.
bókasafninu í Höfn. Það er skrifað á litla kvartörk. Á 4. bls.
er áritunin: „Herra Candidatus philos. P. Melsteð á Brekku".

— Innan-í er lítill miði; á honum er það, sem hér er sett á eftir
bréfinu: „Ég bið þig að tala við" o. s. frv. Páll hefir, ef til vill,
óskað, að Jónas hefði tilboðið þannig og ætlað að sýna Jóni
lektor. —- 5. 1., „Boðsbréfið", sennilega um stjörnufræði Ursins,
í þýðingu Jónasar (sjá bls. 36 og 131), — nema hér sé átt við
miðann með tilboðinu til Jóns lektors. — A miðann hefir Jónas
ritað: „Til P. Melsteð". — Bls. 123. 7. 1., „þennan (ehr. þenna)
dalmatiska", þ. e. Sólsetursljóð; sbr. Bréf P. M., bls. 26:
„Jón-as er að smá-yrkja og hefi eg séð eftir hann Dagrúnarharm,
eftir Schiller), Sólsetursljóð (dalmatiskan lofsöng úr fornöld)" o.s.
frv. — 10. 1., „Þorgrim", Tómasson (Thomsen, faðir drs. Grims),
á Bessastöðum. — 19. 1., „Chr. Hansen" var verziunarmaður í
Reykjavik, þritugur aS aldri; átti heima (aleinn) í
Bergmanns-húsi (sbr. Sögu Rvíkur., I., 172—73) þennan vetur, en mun hafa
farið aftur utan næsta sumar. — 23. 1., „Nafni minn gamli í
Reykjavik", séra Jónas Jonsson, faðir Þórðar Jónassens, siðar
háyfirdómara. Hann kom að Reykholti 1840, 67 ára gamall;
fékk það, þegar Jónas Hallgrímsson sótti um það (30. Mai 1839).
Hann var mjög gamansamur maður. Varð fjörgamall (f. 6. Nóv.
1773, dó í Reykholti 29. Nóv. 1861). Jónas gisti í Reykholti á
vesturleið sumarið áður, 20. Júli, og kann að hafa komið þar
við 22. Sept., er hann fór suður aftur. — 2. 1. a. n., „múka", í
alkorti, fá 5 slagi i einu. — Bls. 124, 1. 1., „besefa", sjö (i alkorti
sérstaklega); — en hér mun vera orðaleikur og gárungaskapur.

— 7. 1., „félagsstjórnin", Bókmenntafélagsins í Rvík. —8.-—9. 1.,
„bréfi því og sýnishorni, sem þartil var ákvarðað á síðasta
fé-lagsfundi". Hann var 14. Sept. 1841, og hinn næsti þar áður var
2. Ag., en Jónas hefir liklega ekki vitað um þá, því að hann var
á ferðalagi sinu. Fundurinn, sem hann á við og sem ákvað að
senda bréfin um veðurbækur, var haldinn 18. Jan. 1841, þ. e.
fyrir rúmu ári, og bréfin (og sýnishornin) voru dags. 20. Marz.
Hafi Jónas átt við þetta bréf og sýnishorn, hefir hann haldið, að
ef til vill væri ekki búið að senda þau enn, nærri ári síðar. Það
hefir þó verið búið, þvi að í skrá félagsdeildarinnar yfir
mót-tekin bréf stendur siðast á árinu 1841: „Ótal loforð um að halda
veðurbækur". Lektor, Jón Jonsson í Lambhúsum, var skrifari
fé-lagsins (Reykjavikur-deildar) og séra Árni Helgason í Görðum
var forseti. — Bréfið og sýnishornið er prentað i minningarriti
félagsins 1867, bls. 86—90. — Eftir fundinn 2. Ág. var sent út
annað bréf, leiðarvisir um meðferð hitamælanna og um athugan-

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:12 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/2/0382.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free