Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 385 —
197, neðst, m. aths. — 8.—9. 1. a .n., „Hauchs eða Ingemanns",
sbr. síðasta bréf, m. aths. — Bls. 154, 7. 1., „Jóhanni Briem",
sbr. síðasta bréf, m. aths. — 8. 1., „ferðalagi ensku
drottningar-innar"; sbr. bréf til K. G. (o. fl.) i byrjun Marz 1844 (bls. 164—
67). Tilefnið til þessarar ferðasögu var það, að Victoria
drottn-ing heimsótti Lúðvik Filippus Frakka-konung þetta sumar, 1843,
í lystihöllinni Eu i Normandii, „og var eigi tilsparað, að allt
skyldi verða með enni mestu gleði og glaumi", segir i Skirni
1844, bls. 46, þar sem þessa er stuttlega getið. Páll segir í
skýr-ingum sinum við bréfið: „Ég man ekki til, að ég sæji neitt hjá
Joh. Briem, — sem þá mun hafa verið kominn til T. Hoppes sem
skrifari —, um ensku drottn." o. s. frv. — Sbr. nú e. fr. Skirni
1935 (CIX. ár), bls. 148—49, kafla í ritgjörð eftir Stefán
Einarsson um bréf Jónasar til K. G. (o. fl.), það, er hér var
get-ið. — 13.—14. 1., „frúnni og konunni þinni", þ. e. frú Sigriði
Einarsen (d. 1860), ekkju Isleifs etatsráðs Einarssonar (d.
1836), og Jórunni, dóttur hennar, sbr. bréf til K. G. 6. Marz
1841, m. aths. — 19. 1., „Bardenfleth", sbr. síðasta bréf, m.
nt-hs.; það var tilkynnt einmitt þennan sama dag með opnu bréfi
konungs um hina fyrstu samkomu hins endurreista alþingis, að
B. væri konungsfulltrúi (sbr. Lovsaml. for Isl., 12. b., 641—43).
— 20. 1., „Espartero", þ. e. hinn frægi landstjóri á Spáni, Don
Baldomero E. Hann var rekinn frá þetta sumar, 16. Ag., og fór
til Englands; sbr. Skirni 1844, bls. 52 o. s. frv. — Hann komst
aftur nokkrum árum síðar til mikilla valda og metorða á Spáni;
var þá í ráði að gera hann að landstjóra að nýju og jafnvel
krýna hann til konungs. Lifði hann lengi eftir það og dó loks
1879, hátt á níræðisaldri (f. 1792). — 21. 1., „Mösting", Johan
Sigismund von M., danskur stjórnmálamaður og visindavinur;
hann var forseti i Fornfræðafélaginu og yfirbókavörður kgl.
bókasafnsins. Hann var nú nýdáinn (16. s. m.), nær 84 ára að
aldri. — 22. 1., „Strimpill"; Páll hefir gefið þessa skýring á,
hver Strimpill var: „Ekki langt frá Regentzen, ég held S
Møn-tergade eða bar nærri, bjó milli 1830 og 1840 „marskandiser",
er Strempel hét. Við færðum nöfnin í íslenzkan búning og
sögð-um „Strimpill". — — — Strimpill átti mikil kaup við okkur
Garðverja um þær mundir og seldi með fjarska góðu verði,
hvernig sem á bví stóð. Sagt var hann hefði komizt í tugthúsið
á endanum. Þeir fóru sumir í óskilum, skiftavinirnir okkar á
þeim árum". — En sbr. e. fr. aths. við bréf til Br. Péturssonar
22. Nóv. s. á. og „Dægradvöl", bls. 173—74.
Bls. 154—155. — TIL FINNS MAGNÚSSONAR. 5. Okt.
1843. — Ehr. í rikisskjalasafninu í Höfn, skrifað á stóra
kvart-HIT J. HALLGR. II. 25
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>