- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / II. Sendibréf, Ritgerðir o. fl. /
391

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 391 —

ingar"; sjá nú um þær þ. á. í Annál 19. aldar, II., 194—95. —

13. 1., „veikindin". „Sumar þetta gekk landfarsótt með miklu
kverfi og beinverkjum yfir allt land. Sýktust næstum allir. Lágu
sumir lengi, og margir dóu, svo talið er, að fækkað hafi yfir
hálft tólfta hundrað manna. Hnekkti þetta mjög heyvirmu og
öðrum bjargræðisvegum", segir í Ann. 19. aldar, II., 179. —

14. 1., „hvernig var haustið og hvernig hafði heyjazt?" —
„Gras-vöxtur mjög misjafn. Sumar vætu- og storma-samt til
Mikaels-messu og hröktust bæði töður og úthey til stórskemmda. Urðu
þó hey að lokum víða að vöxtum nær meðallagi. Eftir byrjun
Október voru snjóar og hörkur, en batnaði með Nóvember og
varð því betra, sem nær leið árslokunum", segir s. st. — 17.—
18. 1., „0. & Wulff", Ørum & Wulff; þeir höfðu
brennisteins-námana í Þingeyjarsýslu á leigu og var leigu- eða
umboðs-tím-inn úti í miðjum Júli 1851. Það sumar var Jón Hjaltalín, síðar
landlæknir, sendur til að skoða námana. Hann hafði áður ritað
„um brennisteininn á íslandi" í Ný félagsrit, XI. árg., 1851, en
skýrslur um ferðir sínar þ. á. birti hann sem ferðabréf til J. Sig.
í XII. árg. sömu rita; sbr. einnig XIII. árg. Um rannsókn
Hjaltalins sjá Landfrs. Isl., III., 204—5. Sbr. einnig sama rit,
IV., 180—82, og Ný félagsrit, XXIX. árg., bls. 209—10. — 20. 1.,
„brennisteinssöguna"; Br. hafði skrifað Jónasi og sagt m. a., að
sögu umboðsins væri hægt að skrifa i Rentukammerinu. —
22. 1., „búnir með allt hitt"; rit Jónasar um brennisteinsmálið
er i IV. b., bls. 8—66. — 24. 1., „fundi ykkar íslendinga", sbr.
bréf til J. Sig. 9. s. m., m. aths. — „Þar sem tala átti um
verzl-unina"; Jónas hefir vitað, að á fundinum, sem haldinn var 8. s.
m., var samkv. uppástungu J. Sig. valin „nefnd til að íhuga
verzlunarmálefnið". En það mál var ekki tekið fyrir aftur fyr
en 6. Marz n. á., og síðan var það enn rætt á 2 fundum, 27.
Marz og 3. April. — 25. 1., „Fjölni", 7. árg. — 32.—33. 1.,
„Fjölnisfundum"; Fjölnismenn héldu fundi þennan vetur, sbr.
fundabók þeirra í Eimreiðinni, 32. árg. (bls. 359—73). Pétur
prófastur (síðar biskup), bróðir Br. P., var nú forseti þeirra,
og siðustu fundir, 1 í Okt. og 1 í Nóv., höfðu verið næsta
dauf-legir, hinn síðari ekki lögmætur. — 4. 1. a. n., „bréfið"; nú
þekkist ekkert bréf frá Jónasi til K. G., skrifað þetta haust,
eða jafnvel þetta ár; ef til vill er hér að ræða um bréf frá
öðr-um en Jónasi, og þó er það óliklegt. — Bls. 161, 1. 1., „Schouw",
J. Fr. Schouw", prófessor, sbr. bls. 156—57, m. aths. — 4. 1.,
„uppgöngu-augu", o. s. frv., sbr. Ferðabók Þorv. Thor., II.,
280: „Það er alþýðutrú hér á landi, að í þess konar vötnum
<þ. e. eilungsvötnum inni á öræfum) séu „uppgönguaugu", og

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:12 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/2/0399.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free