Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 127 —
fram fyrir ofan kjaftinn; hún er sívöl og mjóst i endann.
Kjafturinn er neðan á móti á höfðinu; hann er bæði stór og
ljótur, með þrísettri tannaröð, bæði að ofan og neðan, allt eina
löguðum og hákarls-tanngörðuin; tungan er lik fiskjartungu og
augun stór; húð hans er alsett smáörðum eða hreistri, og er
snörp eins og nautstunga, þegar strokið er með hendi fram
á við, en lítið ber á því, þegar strokið er aftur-eftir. Húðin er
allgóð til skæðaskinns, en þó þynnri á kviðnum en á bakinu,
og í henni tvískæningur í miðju. Allir uggar fiskjar þessa eru
harðir sem bein, og raðirnar á bægslunum svo harðar, að
hann getur auðveldlega skorið með þeim í sundur strengi.
Hann hefir tvo bakugga, annan lítið fyrir framan mitt bak, en
annan skammt fyrir framan sporð; sá fremri er miklu stærri,
en báðir eru þeir dálítið bognir aftur á við. Sporðurinn snýr
þversum (?) og er dálítil lægð inn í hann miðjan. Fiskur hans
er bleikrauður á lit og er fastur i sér eða stifinn. Hann hefir
5 tálknafanir á hvorri síðu (að mig minnir). Lifur hans er eitt
skiði, þykkt og stutt, eins og í silungi, og maginn líkur
há-karlskviði. Bein hans eru eiginlega hvorki brjósk né bein, heldur
þar á milli, en þó likari beinum, — einungis í hryggnum
og uggunum, því í síðunum eru engin bein. Þegar hann er
í skyndi drepinn, er blóð hans að hita til eins og spenvolg
nýmjólk og sjálfur er hann þá innan eins og hálfkólnuð
sauð-kind, sem slátrað er. Hann er digur um höfuðið og allt aftur
fyrir bægsli, en ofur-grannvaxinn allur að aftanverðu«.
Framanskrifaða lýsing hafa undirskrifað:
Sturli Þórarinsson. Einar Jonsson.
Þórarinn Bjarnason. Sigurður Jonsson.
Allir gamlir formenn.
Athugasemd: Sigurður á Bjarnastöðum á
Álfta-nesi sagði dr. Scheving, að allt stæði heima í þessari
lýsingu við hámeri, nema að lifrin í hámerinni væri
kringlótt, en ekki eins langvaxin og silungslifur;
kvaðst hann ekki muna, nema eftir einum stórum
ugga á hámerinni, eður þeim hinum frernra bakugga,
sem talað er um í lýsingunni.
Januar 20. Fulica atra ♂ (?), sendt af Herr
Fak-tor Sv. Olafsen íra Keblevig og skudt 31. Dec. f. A.
paa et »lón« i Garden.
Beskrivelse:
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>