- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / III. Dagbækur,Yfirlitsgreinar o. fl. /
131

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 131 —

neyzlu silungs úr Fiskivötnum. Skyldi það hafa verið
loðsilungur, en hvað er það? Páll segir, hann hafi
eins og myglu (Skimmel) út úr sér, en sé að öðru
leyti eins og almennur silungur. Ég ræð af þessu, að
loðnan á þeim sé sjúkdómur, líkur þeim, sem er á
silkiorminum (Muskardine), og getur þá vel verið, að
hann sé óhollur; cfr. um hitasilung í Mývatni, og
til-raunir hr. Baagøe á Húsavík að flytja sjávarsilung í
fiskitjörn. Loðsiiungur á meðal annars að finnast í
læk, grunnum með óhreinu mýrarvatni, nálægt
Kolla-bæ í Fljótshlíð.

Febr. 8. Hr. Stephán Þorláksson i Havnefjord, som
saa min Vandhøne (fulica citra), gav mig Underretning
om, at han for flere Aar siden havde fanget en saadan
Fugl levende om Vinteren og haft den i flere Uger
gaaende i sin Stue, hvor den mest spiste Kød. Siden
kom den til Reikevig og holdt sig der blandt tamme
Ænder paa Læken og Tjörnen i længere Tid, indtil
den af Vanvare blev skudt.

Sverðfiskur. Guðmundur Brandsson, hreppstjóri
sunnan af Strönd, sagði mér, hann hefði oft séð
sverðfisk, og seinast fyrir skömmu. Hann getur orðið
afarstór, hér um bil 60 álna, og svo var þessi; hornið
að minnsta kosti 7 álnir; ekki meira en álnarbreitt
niður-við, snubbótt og eins og hnúður á endanum;
hann lemur þvi til beggja hliða og aftur á bakið, en
ekki fram; heldur Guðmundur að liðamót hljóti
sjálf-sagt að vera á því niður við bakið. Það er hálft
hvít-leitt (að aftan, minnir mig) og hálft mórautt; eins er
hvalur þessi, nfl. mórauður ofan og hvitur neðan.
Reyðarfiskar, einn og tveir, liggja oftast nær á honum,
hvar sem hann sést. Sami Guðmundur sagði mér frá
rúnasteini í Flekkuvik (»hér heygð Flekka«?), og
öðr-um suður i Garði.

9*

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:31 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/3/0139.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free