- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / IV. Ritgerðir, Jarðfræðilegar og landfræðilegar o. fl. /
197

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 197 —

1614 varð landskjálfti fyrir sunnan land svo bæir
hrundu.

1618 voru enn landskjálftar alltíðir um haustið
og fram að jólum; hröpuðu í einum þeirra 4 bæir
norður í Þingeyjarþingi og sprakk þar jörð í sundur,
svo varla varð yfir komizt; svo segir Björn á Skarðsá.
Þá brann Hekla árið eftir í fjórtánda sinn.

1624 voru sífelldir landskjálftar frá allra heilagra
messu til Andrés-messu og varð þó lengur vart við
þá; féllu í þeim 2 bæir í Flóa og fleiri lestust.

1633 gengu landskjálftar sunnanlands og urðu
mestir í Ölfusi eins og oft og endrarnær, og löskuðust
þar bæir til stórskemmda, og svo voru þessar
hrær-ingar tíðar, að messufall varð á mörgum kirkjum allan
þann vetur.

1657 gjörðist mikill landskjálfti, svo hús féllu
víða fyrir austan, einkum í Fljótshlíð; svo segir
Vatns-fjarðar-annáll og Oddur Eiríksson. Þess finnst og
getið, að landskjálftar hafi enn gengið um sama svæði
fjórum árum seinna.

1693 brann Hekla og fylgdu því tíðir og harðir
jarðskjálftar víða um land og á haf út, svo
íiski-menn fundu, að bátar þeirra hristust og lá við hvolfi.

1706, 1. dag Apríl-mánaðar, en einkum 20. dag
sama mánaðar, urðu harðir landskjálftar. Hrundu þá
hið seinna sinn 24 lögbýli, mest um Ölfus og
utar-lega í Flóa, og margar hjáleigur. Mölbrotnuðu viðir
í húsunum og húsin veltust um, svo undirstöður
veggjanna urðu efstar. Kofar og veik hús stóðu eftir
sumstaðar, þar sem hin sterkari féllu. Matföng og
búshlutir spilltust; kýr og kvikfénaður drápust víða,
en ekki sakaði menn, nema eina konu. Þessar hrær-

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:41 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/4/0209.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free