- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / IV. Ritgerðir, Jarðfræðilegar og landfræðilegar o. fl. /
199

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 199 —

við Sínlands-strendur mest öll í sjó á 8 stundum í
ógnarlegum landskjálfta og fórust þar nær 40
þús-undir manna, og um Suður-Ííalíu og Sikiley féllu
margir staðir og þar á meðal Messínaborg, og dóu
meir en 100 þúsundir manna.

1784, um sumarið, 14. dag Ágústmánaðar, jöfnu
beggja, nóns og miðaftans, varð landskjálfti einhver
hinn mesti, sem komið hefir síðan land byggðist.
Magnús Stephensen segir svo frá, að hann var þá
staddur á Innra-Hólmi, og þegar hræringin hófst og
menn stukku út úr húsunum, sá hann að öll
suður-hlið Akrafjalls stóð í einum reyk af grjótkastinu og
stór björg brotnuðu úr klettunum við sjóinn. Mestur
var landskjálftinn í Árnessýslu; féll þá skólinn í
Skál-holti og flest staðarhús, nema dómkirkjan, og urðu
menn undir, en náðust lifandi. Á Skeiðum féllu allir
bæir, nema 2, og 3 menn í Árnessýslu biðu bana.
98 bæir hröpuðu til grunna og 64 aðrir löskuðust
stórkostlega, og 430 hús hrundu með öllu eður
skemmdust, þar sem ekki varð kollhrun. Þar á ofan
kollvörpuðust 5 kirkjur í Árnes- og
Rangárvalla-sýsl-um, svo að veggirnir lentu ofan á þakinu, 4 hrundu
því nær og 3 brákuðust mjög og skekktust. Á
Vest-mannaeyjum hrundu fuglabjörg til stórskaða og víða
hrapaði grjót úr fjöllum. Jarðvegur rifnaði víða og
komu upp stór-sprungur, en hverir og stöðuvötn
hurfu og [komu] íram á öðrum stöðum. Uppsprettur
og vatnsdældir þornuðu, en sumar urðu að vötnum.
Einungis í kringum Geysi komu upp 35 nýir hverir.
2 dögum seinna kom annar landskjálfti vægari, og
úr því voru hræringar og kippir að finnast við og
við og linntu ekki með öllu íyr en leið fram-undir

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:41 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/4/0211.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free