Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 219 —
Skammt frá Geysi er hverinn Strokkur, annað
furðu-verkið frá. Þar að auki eru smáhverir í hverju spori
um alla hæðina, sumir eru bæði djúpir og víðir, með
rósrauðum kísilmunna og himinbláum botni, aftur eru
sumir svo litlir, að þeir varla ná upp úr jörðunni, og
sjást ekki á öðru en reyknum, sem leggur upp um
sprungurnar. Vatnið rennur út úr þeim á alla vegu
og er búið að mynda steinharða skorpu á jörðunni,
og gufuna úr munnunum, þar sem vatnið vellur og
sýður, leggur yfir landið eins og reykjarský. Svo
nú get ég vel ímyndað mjer, hvernig hinn forni
höf-undur Konungsskuggsjár hélt í einfeldni sinni, að allir
þessir hverir væru raunar katlar, sem íjandinn ætti
og syði í þeim sálir fordæmdra.
Geysir gýs ekki stöðugt á vissum tíma; það er
mikið komið undir regni og vindi, og hvernig stendur
á missirum. Við tjölduðum á milli hveranna, til að
geta þvi betur athugað gosið, og biðum þess með
óþolinmæði allt frá því við komum. Á daginn
forð-uðumst við að fara í burtu og á nóttunni vöktum
við tii skiftis. Þá var það oft, að vökumaður kallaði
okkur úr svefni, þegar tók að verða ókyrrt í munna
Geys-is. Þar var aö heyra dunur í jörðinni, viðlíka og skothrið
úr fallbyssum, og landið skalf, rétt eins og múrbrjótar
byldu á klettunum. Við hlupum þá hver um annan
þver-an að hæðarbarðinu, en vatnið i Geysi hækkaði og kom
allt að fótum okkar á hversbakkanum, og rann svo út
úr hægt og hægt öllu megin, eins og vatn úr stampi,
þegar hann er hristur. Þegar við vorum búnir að
bíða i 2 daga, gátum við loksins komið Strokk til að
gjósa með þvi móti, að við veltum grjóti ofan í hann
og skutum úr byssum yfir munnanum. Allt i einu
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>