Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 295 —
að norðan- og austan-verðu, eru nokkur lág og
ómerkileg smásker.
Brandurinn. Þessi ey liggur lítið sunnar en beint
vestur af Suðurey og er stuttur vegur á millum
þeirra. Hún er all-mikil ummáls, með geysiháum
hömrum að austanverðu, og er bergið þar hæst, en
lækkar siðan vestur-eítir, þangað [til] allra-vestast, að
það hækkar aftur nokkuð, svo eyjan verður þar
söð-ulbökuð. Hryggur liggur eftir henni endlilangri frá
austri til vesturs. Vex þar nokkuð gras og allmikið
skarfakál. Klettur einn stendur í sjónum, svo sem
svarar steinsnari út-suður af Brandinum, kallaður
Höfði, og má þar róa milli á smábátum. Vegur
liggur upp á Brandinn á tveim stöðum, við
landsuður-og útsuður-nefin, og verpir þar mikil mergð af
fýl-unga. Upp-á honum og utan-í honum verpa einnig
hafsúlur, og langvíur einkum utan-i höfðanum. Þar er
6 til 9 kinda beit á vetrum, en ekki má hafa þar fé
á sumrum, sökum varpsins, sem er ágæta-gott.
Álsey eður Álfsey liggur skammt útnorður frá
Brandinum, og er flúð i sundinu millum þeirra, sem
oftast nær brýtur á. Hún er með geysiháum hömrum
að austan, sunnan og vestan, því nær eggsléttum í
sjó niður. Ut úr landnorðurhorninu liggur mjór og
nokkuð hár tangi, sem heitir Mjói-stigur, og verður
ekki gengið út i hann, nema um stórstraumsfjöru.
Fyrir norðan þennan tanga gengur stór bugða eður
vik inn i eyna, og má þar víða fara upp, og heitir
að fara »við flárnar«. Annar tangi liggur út-frá
út-norðurhorni eyjarinnar; hann heitir Þjófanef, og rná
þar komast upp á eyna vestan-við hann, þegar brim
■er að austan. Að ofan er eyjan hár hryggur; heitir
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>