Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— XXXIV —
fyrst í stað, og hefir Konráð gefið þessum ummælum gaum í
æviminningu þeirri, er hann ritaði í Fjölni, IX. árg.; segir hann
þar: ,,Að sönnu er þess getið í skólavitnisburðinum, að hann
hafi heldur verið hyskinn fyrstu árin sín í skóla, en þeir, sem
þá voru honum samtíða, munu flestir verða við að kannast, að
hyskni hans hafi verið eins affaragóð og ástundun þeirra, bæði
að því leyti, sem honum veitti léttara námið, og líka hins vegnar
að hann hafði alla jafna eitthvað fallegt fyrir stafni, sem átti
við eðli hans, og að minnsta kosti seinni árin sín í skóla kynnti
hann sér margt annað en skólalærdóm. Það má t. a. m.
full-yrða, að hann hafi nærri því kunnað utanbókar kvæði hins
forna skálds, Ossíans, snúin á dönöku af séra Steini Blicher.
Um þetta leyti samdi hann líka smá-ritgjörðir og orti
smá-kvæði, og er sumt af því enn þá óglatað". Konráð á hér við
kvæðakver Jónasar frá skólaárum hans, sem nú er handritið
K. G. 31 b I., sbr. fyrstu kvæðin í I. b. og aths. við þau; enn
fremur þýðinguna af kvæði Ossíans, Carric-thura, I. b., bls.
195—96, með aths., og bréf Jónasar til Tómasar
Sæmunds-sonar, II. b., bls. 3. — Þetta kvæðakver er frá siðari árum
Jónasar i skóla; sömuleiðis smá-greinarnar í bekkjarblaðinu
„Iris", sjá I. b., bls. 263—64, og II. b., bls. 203, og
gamanvís-urnar í I. b., bls. 154—55. „Skemmuþjófinn" hefir hann einnig
búið til á þeim árum; en einu sendibréfin, sem til eru frá
skóla-árum hans, eru bréfin, sem nú var getið, til Tómasar
S’æ-mundssonar, II. b., bls. 3—9. Frá fyrstu árunum þrem, þegar
hann var í 1. bekk, er líklega ekkert til nú, svo kunnugt sé með
fullri vissu, og verður lítið um hann vitað á þeim árum annað
en það, sem sjálfsagt er af skólaverunni, sbr. það, er sagt er
hér á undan. — Eins og getið er í burtfararvottorðinu, fékk
hann hálfa ölmusu, 30 dali, fyrsta veturinn, sem hann var í
skóla, en siðan jafnan heila.*) Hann hefir vafalaust verið
heima á Steinsstöðum á hverju sumri, farið norður i Júni og
suður i September, og sennilega oftast eða ætið farið Kaldadal
og Stóra-Sand, Norðlingaveg, sem kallaður var og flestir
lang-ferðamenn fóru fyrrum, bæði fyr og síðar. Riðu Eyfirðingar
(sem Skagfirðingar) um Mælifell og siðan um Norðurárdal og
Oxnadalsheiði svo sem enn er farið.
Um hin síðari skólaár Jónasar verður meira vitað af því,
sem enn er til eftir hann frá þeim árum og nú var getið. Það
er ekki mikið að vöxtunum til, enda ekki við því að búast af
*) Samkv. bréfi stiftsyfirvalda, dags. 10. Sept. 1823, og
stifts-prófasts, dags. 16. Júlí 1824.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>