Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— LX —
Jónas var nú brátt skráður stúdent, studiosus juris, við
háskól-ann; fór það fram 10. Nóvember. Hann fékk vist á Garði
(Regen-sen) og styrk (Kommunitetsstipendium). Hefir hann sennilega
flutt sig á Garð 1. Nóvember eða einhvern næstu daga. Vinurinn
hans bezti frá skólaárunum, Gísli Isleifsson (Einars), bjó þar
á 3. gangi í nr. 5; voru þar 2 herbergi (lestrarherbergi og
svefn-herbergi) og ætluð 2 sambýlismönnum. Komst Jónas nú þar inn
og bjó þar öll fjögur ár sín á Garði, hin fyrstu 2 með Gísla, en
hin síðari 2 með Páli Melsted.*) — I nr. 6 bjó Jón Sigurðsson frá
því snemma á árinu 1834.**)
Tómas Sæmundsson segir svo í einu bréfinu sínu til föður
sins (sjá Bréf, bls. 13): „Þegar ég er búinn að taka examen,
verð ég að kaupa mér heila dátamúnderingu, nfl.
rauðflekkótt-an kjól, hjálm eða einslags leðurhatt á höfuðið, korða og
byssu,***) og standa úti á vigvellinum fjóra tima daglega [til
þess] að æfa mig i stríðs-íþróttum". — Sömuleiðis segir Páll
Melsted í Endurminningum sinum (bls. 56): „Þegar um
haust-ið (1834), eftir examen artium, fórum við að ganga í
her-mannaskóla og læra heræfingar, og vorum teknir í
„Studenter-Korpset"; i þvi voru um 800 stúdentar. Við höfðum okkar
ein-kunnarbúning, og þótti okkar flokkur ásjálegur. — — — Við
höfðum byssur, bajónett og sverð, leðurhatta á höfði, litlar
leð-urtöskur á baki með kúlum og púðri og ýmsu. Eg fann, að
þess-ar heræfingar voru heilnæmar, og stundaði eg þær af alhuga".
„Studenterkorpset", sem svo var kallað, hét í rauninni
„Kon-gens Livkorps". Það var upphaflega stofnað 1801 af konginum,
Friðriki 6., begar hann var krónprins, og voru í bví
sjálfboða-liðar einir og engir aðrir en stúdentar. Var það þá nefnt
„Kron-prinsens Livkorps", en 1808 fékk það nafnið Kongens Livkorps,
og 4 árum síðar hætti bað að vera sjálfboðaliðaflokkur, bvi að
þá var svo fyrirskipað, að allir háskólastúdentar skyldu vera í
því. Var hlutverk bess að taka þátt i vörn borgarinnar í stríði.
— Árið 1849 var lögleidd almenn herskylda og var þá hætt
þess-um sérstöku heræfingum stúdentaliðsflokksins, en það var látið
heita svo, að hann væri til 25 ár enn.
Jónas varð að sjálfsögðu að taka þátt í þessum
heræfingum. Sór hann þegnskapareið þegar um haustið, daginn eftir að
hann fékk prófskírteinið, 23. Okt. 1832. Mun hann hafa byrj-
*) Sbr. Endurminn., bls. 54.
**) Ævis., I., 148.
***) Hjálminn, koröann og byssuna hefir hann ekki þurft a&
kaupa, er til kom; sbr. aths. ütgef. bréfanna.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>