- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / V. Smágreinar Dýrafræðislegs efnis, Ævisa A o. fl. /
37

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 37 —

mynduð, ávöl á röndum. Bakbægslið situr aftarlega,
beygist aftur á við, og er sem lítið eitt sleikt úr því
að framan. Hún hefir margar og djúpar hrukkur á
kviðn-um, og er á litinn svört að ofan og hvít að neðan,
með rauðlilum flekkjum. Spikið er fast í sér og
ekki lýsismikið. Hún er býsna-almenn við
Græn-lands-strendur, og oftast nær innan skerja og smýgur
inn í hvern fjörð. Á veturna er hún sjaldgæfari, og
þykir sem þeim fjölgi eftir því sem dregur suður
og austur á við.

Loðna, eður vorsild, og aðrir smáfiskar eru
hennar Ijúfasta fæða, og eltir hún sílið svo ákaflega, að
það stekkur fyrir henni upp úr sjónum. Hún blæs
hart og snöggt, og fer oftast nær ein sér.
Grænlend-ingum þykir þessi hvalur hið mesta sælgæti og nota
sér hann allan, þegar hann næst, ä líkan hátt og
keporkakinn. Hún er mjög hraðsynd, og því ber
sjaldan við, hún verði járnuð; en heppnist það, finnst
hún oftast nær dauð af sári sínu skömmum tíma siðar.

IV.

BALÆNA MUSCULUS, LINN.

Þessi reyður er svo nefnd eftir Sibbalds »b.
tri-pennis, qui maxillam inferiorem rotundam, et
supe-riorem(-i?) multo latiorem habuit«, — er hann lýsir
á þessa leið: Niðurskolturinn er miklu breiðari og
lengri en uppskolturinn, nærfellt hálf-kringlóttur.
Upp-skolturinn er frammjórri. Blásturholin eru í tveim
strýtuhnúðum. Bakbægslið er beint yfir endagatinu.
Bakið er svart; kviðurinn hvítur. Cfr. Sibb. Phalæn.
nov., p. 78 etc.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:53 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/5/0249.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free