- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / V. Smágreinar Dýrafræðislegs efnis, Ævisa A o. fl. /
92

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 92 —

Svona lýsir Cuvier fiskunum, og býst ég við,
mörgum muni þykja fróðleg saga hans, og muni þeir
girnast að heyra nokkuð skýrt frá sköpulagi og eðli
einstakra tegunda, og þá einkum þeirra, sem lifa i
íslandshöfum, eða ám og vötnum þar á landi. En því
er miður! það er ekki hægt sem stendur að semja
íslenzka fiskafræði, svo það verði nokkur mynd
á henni, því við vitum of lítið um flestar og alls
ekkert um sumar tegundir fiskanna okkar, og sizt
það, sem mest er um varðandi, til að mynda
fiski-göngurnar og riðtímann og fæðslu ýmsra tegunda,
og margt annað þvi um likt. Einum manni vinnst
ekki aldur til að athuga sjálfur háttalag allra
dýr-tegunda, svo hann geti skýrt frá því greinilega, þó
ekki sé i stærra landi eða auðugra að tegundum en
ísland er. Hann verður að nota reynslu annara og
bera saman margra manna sögusögn, til að geta greint
sem sannast frá öllu, er hann hefir ekki sjálfur séð.
í þessu skyni bið ég alla góða menn á íslandi, sem
eiga heima við sjó eða silungsvötn og hafa tekið
eftir eðlisháttum dýranna, sem í þeim búa, auðsýna
mér þá góðvild, að fræða mig um allt, sem þeir geta
og þessu efni víðvíkur; vildi ég helzt æskja, að þeir
hver um sig bæru fyrir sig reynslu sjálfra sín og ekki
annað, og nefndu sem flesta atburði til sönnunar
málinu. Það er og bæn mín, ef sjómenn ná
fábreyti-legum fiski eða einhverri sjókind, sem þeir vita ekki
deili á, að låta hana í brennivín og búa vel um, og
senda mér hingað til Kaupmannahafnar. Bið ég þessa
fyrir dýrasafnið hér í bænum, og er það sjálfsagt,
að þeir fá fyrirhöfn sína og tilkostnað borgaðan. En
sé dýrið of fyrirferðamikið til þess það verði sent

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:53 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/5/0304.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free