- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / V. Smágreinar Dýrafræðislegs efnis, Ævisa A o. fl. /
107

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 107 —

1 tegund: Keila (brosmius vulgaris). — Efri
skolturinn dálítið lengri en neðri skolturinn; mikill
fjöldi tanna og skeifuboginn tanngarður í gömnum;
hreistrið er lítið og sundrákin sést varla; liggur nær
hrygg en kviði. Eyruggarnir litlir, kringdir og breiðir,
kv. þykkir. Höfuðið dökkleitt. Bak og hliðar gular,
ljósari að neðan, og kviðurinn hvítur. Bakuggi og
kjaluggi dökkmórauðir, með mjórri, svartri mön eftir
endilöngu utan-til og sjálfri röndinni hvitri. Svo er
og sporðurinn, en eyruggarnir og kverkuggarnir eru
almórauðir. Lengdin nálægt alin. Þanir: B. 49; kj.
37; eyr. 21; kv. 5; sp. 35.

Sagt er (Neue Memoiren von Stockholm, Bd.
XV, T. 8), að við ísland sé önnur stærri keila, sem
verði 3 feta eða meir; hún á að vera grænmórauð á
lit og bakuggi og sporður með svörtum röndum.

Önnur ætt: Flyðrur (pleuronectides).

Þær eru mjög skakkar og allar í annari hliðinni,
eins og þær væru ekki nema fiskhelmingur; þær
synda því á hliðinni, og sú hliðin, sem meir er
vax-in, snýr upp, og þeim megin eru bæði augun;
stundum er það hægri hliðin, stundum hin vinstri, þó er
það miklu sjaldgæfara. Ekkert nema eyruggarnir er
eins beggja vegna.

I. kyn: Koli (platessa).

Snubbóttar, einraðaðar skurðtannir i kjálkunum
og oftast nær flatar tannir á kjálkabeinunum,
bak-ugginn nær ekki fram fyrir augað, og bil frá
sporðin-um til bak- og kjalugga.

1. tegund: Karkoli, rauðdepla (p. vulgaris).

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:53 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/5/0319.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free