- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / V. Smágreinar Dýrafræðislegs efnis, Ævisa A o. fl. /
181

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 181 —

fyrir hér, enda brestur fullkomin gögn til þess að svo stöddu.
Á-stæða væri þó til að bera þessar skrár saman við skrá um íslenzk
land-lindýr (Uebersicht der Land- und Süsswasser-Mollusken
von Island), sem Jap. Steenstrup birti á náttúrufræðingafundi í
Kiel árið eftir að Jónas dó; er hún prentuð í fundarskýrslunni
(Amtlicher Bericht über die 24. Versammlung Deutscher
Natur-forscher und Aerzte in Kiel im September 1846. Kiel 1847), bls.
220—21, og byggist á lindýra-söfnum og -athugunum þeirra
beggja. Einnig væri ástæða til að bera þessar skrár, frekar en
hér verður gjört, saman við lindýraskrá Ottós A. L. Mörchs,
Faunula molluscorum Meddel. fra Noturhist. Forening 1868, bls.
185—227, og er sömuleiðis byggð á lindýrasöfnum Jónasar og
Jap. Steenstrups að miklu leyti, en jafnframt ýmsum öðrum
heimildum. En sérstaklega væri æskilegt að bera þessar skrár
Jónasar saman við skrá Guðm. G. Bárðarsonar, Om den marine
Molluskfauna ved Yestkysten af Island, Kbh. 1920; mun hún vera
einna bezt þeirra, sem til eru nú á því sviði, sem hún nær yfir.
Að sjálfsögðu er einnig vert að bera saman þær tvær skrár
Jónasar sem hér eru prentaðar; verður það ekki gert hér, nema
að litlu leyti, en það getur raunar hver gert, sem vill. •— II.,
siðari skráin, er í hr. add. 306 í hrs. háskólans í
Kaupmanna-höfn, bls. 160—65, rituð þar af cand. philos. Brynjólfi
Snorra-syni, að því er virðist. Tegundirnar eru þar taldar að sumu leyti
i annari röð og flokkunin ekki eins, né heldur svo nákvæm. — I
nr. 13 i abr. i hrs. Bmf. eru e. fr. 2 lindýraskrár og er önnur
með hendi Jónasar; sennilega er hún að eins brot af stærri skrá;
hún er, að heita má, eins og síðari hlutinn af II. skrá og ef til
vill frumrit Jónasar af henni; hún er yfir mytilacea og allt, sem
á eftir fer til enda, sjá bls. 125, og auk þess (hins vegar á
blað-inu) ascidiæ, nær eins og IV. 1. a i I. skrá B, bls. 122, en auk
þeirra 5 tegunda, sem þar eru taldar, er i þessu broti talin „a.
mentula,, konupungur". — Hin skráin, sem er i nr. 13 i abr., er
ekki með hendi Jónasar,. heldur, að þvi er virðist, Jap.
Steenstrups, og hann hefir bætt inn i hana með blýanti tilvitnunum Í
náttúrufræði Mohrs, en Jónas hefir bætt inn i hana nokkrum
’is-lenzkum heitum, og er þeim bætt hér inn i I. skrá (en au’k bess
mörgum öðrum, i hornklofum, eins og áður er tekið fram). I
rauninni er þessi skrá i nr. 13 í abr. í tvennu lagi eða 2 skrár
samfastar; eru fyrst taldar 34 tegundir af skelbúkum, Bivalves
IslancLiæ, og 4 af berbúkum, sömu og á bls. 122, alls 39; en síðan
65 tegundir af hausfætlum, blaðfætlum og kviðfætlum. Virðist
I. skrá Jónasar samin eftir þessari skrá, og raunar einnig II.
skrá, en liklega fyr.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:53 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/5/0393.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free