- Project Runeberg -  Hvíta Bandið 50 ára 1895-1945 /
16

(1945)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

>

Núverandi stjórn félagsins (talið frá vinstri): í aftari röð: Frú Guðrún
Skúladóttir. Frú Oddfríður Jóhannsdóttir, gjaldkeri. Frk. Guðrún
Thorlacius. Frú Þórunn Hafstein. — í fremri röð: Frk. Guðlaug Bergsdóttir,
varaform. Frk. Helga Þorgilsdóttir, form. Frk. Hólmfríður Jónsdóttir, ritari.

eignina, heíði það getað greitt allar sínar
skuldir og líka það, er bærinn hefur
lán-að því frá upphafi, og átt samt mikla
upphæð eftir.

Siðastliðinn vetur hafði félagið
merkja-sölu, eins og oft áður, og var ágóðanum
varið til styrktar dönsku flóttafólki.
Margt fleira hefur félagið gert, sem hér
verður ekki upp talið og eflaust er mikið
af því gleymt. Mikið á félagið af bréfum
frá fólki, sem það hefur rétt hjálparhönd,
og eru þau full af þakklæti og
blessunar-óskum til félagsins. Freistandi væri að
geta þeirra kvenna, er mest og bezt hafa
starfað fyrir félagið, fyrir utan þær, sem
getið er um sérstaklega hér í ritinu, en
það yrði of langt mál. Ekki get ég samt
látið vera að minnast frú Steinunnar
Guðbrandsdóttur frá Akri, sem nú er
ný-látin og sem lengi vann mikið og
óeigin-gjarnt starf í þágu félagsins. Þá má það
og merkilegt heita, að tvær konur eru
enn í félaginu, sem gengu í það á
stofn-fundi þess fyrir 50 árum og eru enn hinar

starfhæfustu, þær frú Jóhann
Gestsdóttii-og frú Bjarnfríður Einarsdóttir, sem
myndir eru af hér í ritinu. Nú eru
fé-lagskonur um 90 að tölu og fer þeim
fjölgandi.

Hvítabandið var í fyrstu stofnað utan
um hugsjónir mannréttinda og
bróður-þels og hefur það unnið að því, að
lið-sinna lítilmagnanum og rétta bágstöddum
hjálparhönd. Það er kannske ekki hægt
að segja, að hin litla, íslenzka deild þessa
félagsskapar hafi unnið stórvirki á því
sviði, til þess hefur félagið verið of
fá-tækt og fámennt. En ég þori að fullyrða,
að það hefur haft margar ágætar og
merkar konur innan sinna vébanda, sem
hafa unnið málefnum þess af heilum hug
og verið bæjarfélaginu hinar þörfustu.
Og við, sem nú störfum í félaginu,
von-um að það eigi eftir að verða mörgum
góðum málefnum að liða, enda þótt
örð-ugt sé að taka við og halda merkinu uppi,
þar sem miklar konur hafa af stað farið.

1 6 hvítabandið

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 08:38:19 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hvitband50/0018.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free