- Project Runeberg -  Hvíta Bandið 50 ára 1895-1945 /
18

(1945)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

/

Hólm fríður A rnadóttir:

Yngri deild Hvitabandsins

Með því að ég hafði fengið umboð frá
Heimsfélagi Hvitabandsins til að stofna
ný félög eða deildir, þá fékk ég fáeinar
konur, sem voru félagskonur í
Hvíta-bandinu í Reykjavíó, til þess að stofna
með mér nýja deild, sem fékk nafnið
Yngri deild Hvitabandsins, sem var
hlið-stæð eldri deildinni, en ekki að neinu
leyti undir hana gefin. Við, sem stóðum
að stofnun deildarinnar, vorum eftir sem
áður í eldri deildinni og störfuðum með
henni, jafnframt og í hinni. Þetta var því
líkast og þegar ný stúúka er stofnuð í
Góðtemplarafélaginu. Gerðust margar
ungar stúlkur og konur félagar. Stofnun
deildarinnar fór fram veturinn 1914, og
voru fundir haldnir tvisvar í mánuði, á
Hverfisgötu 50, þar sem ég starfrækti þá
skóla. Þegar yngstu nemendur mínir

komust að því, að svo margar af eldri
nemendum skólans voru starfandi í
fé-lagi þessu, langaði þær einnig til að
stofna með sér félag, sem þá fékk nafnið
Yngsta deild Hvitabandsins, og svaraði
það aftur til barnastúku í
Góðtemplara-félagi.

Haustið 1917 yfirgaf ég’ ísland og dvaldi
um fimm ára skeið í Ameríku. Deildir
þær, sem getið er um bér að framan,
héldu áfram að starfa undir handleiðslu
nokkurra ágætra kvenna.

Þó þær hafi nú lagzt niður, sem stafar
af breyttum tímum og minni þörf á
fé-lagsskap af þessu tagi, þá hafa þær gert
sitt gagn, og sé ég ekki eftir þeim tíma,
sem ég af eigin hvötum eyddi til að vinna
í félögum þessum.

Frk. Guðlaug Hedvig Bergsdóttir var
formað-ur Hvitabandsins frá 1934—1944. Hún er fædd á
Flateyri við Önundarfjörð 8/10 1903.
Útskrifað-ist úr Kvennaskólanum í Reykjavik 1924. Auk
þess var hún eitt ár við nám í Kaupmannahöfn.

Hún tók við stjórn félagsins á mjög örðugum
árum. Hvitabandið hafði þá nýlega reist hið
myndarlega sjúkrahús við Skólavörðustig, og
voru ýms vandamál þá á döfinni, sem aðallega

mæddu á frk. Guðlaugu, enda reyndist hún
bæði dugleg og úrræðagóð og vann dyggilega
að gagni og sóma félagsins. Oll þau ár, sem frk.
Guðlaug var formaður félagsins, gekk starfsemi
þess út á það, að halda sjúkrahúsinu starfandi
og var það mest og bezt hennar dugnaði að
þakka, að félagið gat starfrækt sjúkrahúsið öll
þessi ár. Félagskonur þakka frk. Guðlaugu
ágæt-lega unnið starf í þágu Hvitabandsins. H. J.

1 8 hvítabandið

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 08:38:19 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hvitband50/0020.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free