- Project Runeberg -  Hvíta Bandið 50 ára 1895-1945 /
20

(1945)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

sem þó varð mjög vinsælt. Seinna veitti
hún forstöðu bamahæli, er
Oddfellow-reglan kostaði á Brennistöðum í
Borgar-firði. Hún vár eiitt sinn í landspítalanefnd
þeirri, er kom Landspitalanum á fót og
vildi hún ]áta byggja bæði barnaspítala
og fæðingardeild við hann, og sýnir það
framsýni hennar. Mörg opinber mál lét
hún sig skipta og í stjórnmálum tók hún
virkan þátt, en það verður eigi hér rakið.

Sigurbjörg var ein af stofnendum
Bandalags íslenzkra kvenna 1917 og þar
kom hún fyrst fram með hugmyndina
um stofnun hjúkrunarheimilis í
Reykjavik fyrir sjúklinga utan af landi, er biðu
eftir að komast á sjúkrahús. Vildi hún
að bandalagið tæki að sér að koma þessu
i framkvæmd, en það mun eigi hafa haft
miklu fé úr að spila og gat það því eigi
beitt sér fyrir málinu. En það var
gagn-stætt skapgerð Sigurbjargar að hætta við
það er hún einu sinni byrjaði á. Flutti
hún þvi hugmyndina aftur til
Hvíta-bandsins og var nú hafin öflug fjársöfnun
og unnið að framgangi málsins. Það er
erfitt verk og vanþakklátt að standa fyrir
fjáröflun félaga, ekki sízt var það svo á
hinum miklu krepputímum, er tóku við
um og eftir 1920. Ýmsum fannst mikið í
fang færst og sumum þótti seint ganga,
eins og oft vill verða. En áfram þokaðist
samt, einkum fyrir viljafestu og’ þrek

Sigurbjargar, enda veittu henni aðs.toð
margar ágætar konur, er í félaginu voru.
1932 var byggingin hafin, en þegar til
lán-töku kom, þótti heppilegra að hafa þetta
sem sjúkrahús. Húsið reis af grunni, en
Sigurbjörg fékk ekki að sjá draum sinn
rætast til fulls. Til þess varð æfin of
stutt. Hún andaðist eftir langvarandi
vanheilsu 26. des. 1932. Öllum varð hún
harmdauði og félagið hennar varð um
stund sem höfuðlaus her. Að
mannúðar-málum hafði hún unnið alla tíð og heilt
og óskipt var starf hennar í þágu
félagsins. En hitt veit enginn, hver þrekraun
það hefur oft og tíðum verið fyrir
emin ana konu, með fremur örðugar
heimil-isástæður og erfitt lifsstarf, að taka svo
virkan þátt í opinberu lifi, sem hún gerði.
En heilsteypt skapgerð og hjartagæði
veittu henni þrek til að komast lengra
áleiðis en fjöldinn og mun hún þó oft
hafa orðið að leggja hart að sér, þar sem
heilsan var veil, einkum seinni áriin. En
mennirnir hverfa og minningarnar eyðast
og að lokum man enginn eftir lifsstriti og
störfum þeirra, sem fyrir löngu eru
komnir undir græna torfu. Þó er það
áreiðanlegt, að á meðan hið islenzka
Hvitaband lifir, þá mun Sigurbjargar
Þorláksdóttur verða minnzt sem einnar
þrekmestu og starfshæfustu konu, er í
félaginu hefur verið.

1 20 hvítabandið

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 08:38:19 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hvitband50/0022.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free