Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
VII
var eigi fyrir hendi; verst þótti mér, að kortasafn
Norden-skiölds var þar eigi til, en enginn kostur var á að nota
það áður en 1. hepti bókarinnar var prentað um vorið
1892. Litlu síðar fór eg til Kaupmannahafnar og hafði
þá ásett mér í viðaukum aptan við landfræðissöguna að
geta um hina helztu uppdrætti, er eg fyndi erlendis, en
nú með því að útgáfa bókarinnar dróst svo mjög, þá
varð kand. Olafur Davíðsson miklu fljótari og ritgjörð
hans1 hefir að nokkru leyti tekið af mér ómakið, svo eg
þarf ekki að fjölyrða um þessi landabréf, enda mundi
allur þorri manna kunna mér litla þökk fyrir, þó eg í
þessari bók lýsti þeim nákvæmlega.
Utgáfa bókar þessarar hefir dregizt miklu lengur en
æskilegt hefði verið ; deild bókmenntafélagsins í
Reykja-vík hefir hin seinni ár átt við svo þröngan fjárhag að
búa, að prentuninni hefir eigi orðið haldið áfram. Nú
hefir deild bókmenntafélagsins í Ivaupmannahöfn tekið
áframhald ritsins að sér, og þykir því fara bezt á því að
láta 17. öldina byrja nýtt bindi. Þess skal getið, að síra
Eggert Brim las prófarkir þessa fyrsta bindis.
p. t. Kaupmannahöfn í maímánuði 1896.
Þorvaldur Thoroddsen.
1) Ritgjörð Ó. D. í tímariti bókmenntaíélagsins 1893 er mjög
fróðleg að mörgu leyti; eg er þó í allmörgu á öðru máli en
höf-undurinn og margt þykir mér athugavert. Þegar Jandf’ræðissagan
öll er komin út, mun eg í einu lagi rita athugasemdir við alla
rit-dóma um hana.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>