Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has been proofread at least once.
(diff)
(history)
Denna sida har korrekturlästs minst en gång.
(skillnad)
(historik)
hans; líklega hafa ekki menn eins almennt þekkt hina
eldri rithöfunda.
Á dögum Claudíusar keisara (41—54 e. Kr.) fengu
Rómverjar fótfestu á Bretlandi, en áttu þar i sífelldum
ófriði um mörg ár, uns Julius Agricola († 94) tókst að
friða landið, sefa uppreisnir, og sigra Breta og Skota í
mörgum orustum. Um þá daga fengu suðurþjóðirnar
miklu meiri og betri vitneskju um Bretland og löndin þar
í kring, þó ekki sje mikið af því fært í letur. Tacitus,
hinn frægi sagnaritari, var tengdasonur Agricolu og hefir
ritað æfisögu hans. Tacitus segir ýmislegt frá Bretlandi.
Meðal annars segir hann, að þá hafi fyrst rómverskur
floti siglt í kring um Bretland og hafi menn þá fyrst séð,
að land þetta var eyja. Tacitus segir enn fremur, að
Rómverjar hafi þá fundið Orkneyjar [1] og lagt þær undir sig,
og að þeir hafi séð Thule í fjarska, en snjór og vetur
gekk þá i garð; segir Tacitus, að sjórinn þar sje þungur
og mjög örðugt að róa, og að vindarnir þar geti því varla
reist neina báru. Þessi Thule, sem Tacitus talar um,
getur ekki verið annað en Hjaltland. Hugmyndin um þungt
og þétt, letilegt myrkrahaf í norðrinu kemur fram hvað
eptir annað hjá fornum rithöfundum; kalla þeir haf þetta
ýmsum nöfnum, og segja um það ýmsar bábyljur. Lýsing
Tacitusar á sjóferðinni er annars ekkert ólíkleg; það var
von þó Rómverjum þætti þungt að róa norður undir
Hjaltlandi; það veit hver, sem þar hefir farið, hve þungt
vestanfallið er þar i sjónum og hve örðug úthafskvikan opt
getur verið jafnvel fyrir gufuskip.
Það er auðsjeð á því, sem vér hér að framan höfum
tilfært úr ýmsum höfundum, að þeir vita ekkert um Thule
annað en það, sem Pyþeas hefir sagt og hefir hver tekið
frásögn hans eptir öðrum, langt niður eptir öldum;
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>