- Project Runeberg -  Landfræðissaga Íslands / I. /
19

(1892-1904) [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has been proofread at least once. (diff) (history)
Denna sida har korrekturlästs minst en gång. (skillnad) (historik)

á Orkneyjum á miðri 13. öld, er þess getið, að þar hafi
búið Piktar og Papar, er Norðmenn námu þar land; um
Papana segir höfundurinn meðal annars: »Papar voru
þeir kallaðir af því þeir klæddust hvítum klæðum eins
og klerkar. Þess vegna eru allir klerkar á tevtonska tungu
kallaðir Papar. Enn þá heitir ein eyja Papey eptir þeim. [1]
Allmörg örnefni á Orkneyjum og Hjaltlandseyjum benda
á Papana. Í Orkneyjum eru tvær Papeyjar, Papey meiri
og Papey minni (Papa-Westray og Papa Stronsay) og á
tveim stöðum heitir þar Papýli, á Hrossey (Mainland) og
á Rögnvaldsey (South Ronaldsay). Við Hjaltland eru
líka tvær Papeyjar, Stóra Papey (Papa Stour) og Litla
Papey (Papa Little) o. s. frv. [2] Af þessu sézt, að klerkar
frá Írlandi mjög snemma hafa sest að á eyjum þessum
og má svo rekja feril þeirra um Suðureyjar, Orkneyjar,
Hjaltland, Færeyjar og alla leið til Íslands. Hinir fyrstu
íbúar, sem menn hafa sögur af á Orkneyjum, voru Piktar,
og tóku þeir snemma við kristni, sagt er að Cormac hafi
boðað þar kristni á 5. öld. Piktar héldu Orkneyjum fram
á níundu öld, [3] en þá urðu bæði lærðir og leikir að stökkva
úr landi fyrir ofríki hinna norrænu víkinga. Munkaflokkar
frá Írlandi settust víða að á eyjum og útskerjum við
strendur Skotlands á 8. og 9. öld, og finnast mjög víða merki
eptir þá; [4] þar sem byggð var boðuðu þeir kristni, og


[1] Breve Cronicon Norvegiæ. Symbolæ ad historiam antiquiorem
rerum Norvegicarum. Ed. P. A. Munch. Christiania, 1850, bls.
6 og 38.
[2] P. A. Munch: Geografiske Oplysninger om Orknöerne
(Annaler for nordisk Oldkyndighed 1852, bls. 54-58).

[3] Nennius: Historia Britonum, cap. 5. (Monumenta historica
Britannica 1848 I, bls. 56). Nennius segir, að Piktar hafi lagt undir
sig Orkneyjar í fyrndinni og búi þar enn. Nennius lifði fram yfir
miðja 9. öld.
[4] Á Orkneyjum eru mörg merki um hina eldri kristni og klerka
þessa, sbr. Joseph Anderson: Introduction to The Orkneyinga Saga.
Edinburgh 1873, bls. 11-21. Þar hafa meðal annars fundizt
sjerstaklega lagaðar bjöllur, eins og þær, sem voru notaðar í hinni elztu
kristni; eru þær líklega eptir Papana og ef til vill líkar bjöllum þeim
sem fornmenn fundu hjer á landi. Mynd af þess konar bjöllu, er
hjá Anderson á s. st., bls. 14. Þessir elztu keltnesku klerkar og
einsetumenn hafa snemma verið kallaðir Culdees (guðsmenn) af
keltnesku orðunum cule = socius, de = dei; var nafn það brúkað
um keltneska munka, hvort þeir voru í klaustrum eða einsetumenn.
Worsaae talar um menjar eptir Pikta á Orkneyjum og
Hjaltlandseyjum; þar eru kastalarústir (pictish towers) o. m. fl. Minder
om de danske og Nordmændene í England, Skotland og Irland,
bls. 280.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 14:45:09 2023 (aronsson) (diff) (history) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/landfraed/1/0033.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free