Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has been proofread at least once.
(diff)
(history)
Denna sida har korrekturlästs minst en gång.
(skillnad)
(historik)
Sprengisandur kallaður Sandleið, en í Sturlungu eingöngu
Sandur; þar er meðal annars getið um eina ferð Guðmundar
góða; að hann fór upp Bárðardal, svo um Króksdal og
suður Sand, [1] 1242 reið Þórður kakali »norður yfir
Vöðlaheiði, ok svá ina nörðri leið á Sand, [2] og i annað sinn
reið hann »norðr um heiði ok upp Bleiksmýrardal, svá
suðr um land ok kom niðr at Keldum». [3] Í Njálu er
Sprengisandur kallaður Grásasandur. [4]
Í Landnámu eru töluverðar frásagnir um það, hvernig
Kjalvegur fannst. Hrosskell hét maður; hann nam
Svartárdal allan og bjó að ýrarfelli; hann sendi þræl
sinn Hrærek upp eptir Mælifellsdal í landaleitun suður
á fjöll; hann kom til gils þess, er suður verður frá
Mælifellsdal og nú heitir Hræreksgil; þar setti hann niður
staf nýbirktan og eptir það hvarf hann heim aptur.
Vekell hinn hamrammi bjó að Mælifelli; hann spurði ferð
Hræreks; þá fór hann litlu síðar suður á fjöll í
landaleitan; hann kom til hauga þeirra, er nú heita
Vekelshaugar; hann skaut milli hauganna og hvarf þaðan aptur.
En er þetta spurði Eiríkur í Goðdölum, sendi hann þræl
sinn suður á fjöll, er hét Raunguður; fór hann í
landaleitan og kom suður til Blöndukvísla og fór síðan upp
með þeirri á, er fellur fyrir vestan Vínverjadal og
vestur á hraunið milli Reykjavalla og Kjalar, og kom þar á
mannsspor og skildi, að þau lágu sunnan að; hann hlóð
þar vörðu, sem síðan var kölluð Raungaðarvarða; þaðan
fór hann aptur og gaf Eiríkur honum frelsi fyrir ferð
sína, og þaðan af tókust upp ferðir um fjallið milli
Sunnlendinga fjórðungs og Norðlendinga. Nokkru seinna
þreyttu þeir Þórir dúfunefur og Örn nokkur, sem var
fjölkunnugur landshornamaður, skeið suður um Kjöl og
lögðu við hundrað silfurs; Erni gekk miður og undi hann
svo illa við félát sitt, að hann vildi eigi lifa lengur og fór
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>