- Project Runeberg -  Landfræðissaga Íslands / I. /
38

(1892-1904) [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has been proofread at least once. (diff) (history)
Denna sida har korrekturlästs minst en gång. (skillnad) (historik)

er um kirkjustjórn Gissurar biskups: »þá voru flestir
virðingamenn lærðir ok vígðir til presta, þó at höfðingjar
væri«. [1] Af þessu leiddi, að mestu skörungar
þjóðarinnar og framkvæmdamenn, urðu lærðir og leiknir í þeim
menntum, sem klerkar þá tíðkuðu; þeir fyrirlitu ekki þá
þjóð og það land, sem þeir voru í; þvert á móti, þeir
voru nátengdir hinum innstu taugum þjóðlífsins, og því
var það eðlilegt, að þeir notuðu hæfilegleika sína og
menntun, til þess að víðfrægja ættir sínar og telja upp
hreystiverk forfeðranna, sem voru eptirkomendunum til
heiðurs og sóma; þó þeir kynnu latínu, þá fyrirlitu þeir
ekki móðurmálið, en rituðu sína eigin tungu og voru í
því fremri öllum öðrum kristnum þjóðum í Európu. Hinir
fyrstu biskupar voru hinir mestu ágætismenn, og stuðluðu
að því, sem gat orðið landinu til góðs, en þetta
breyttist því miður seinna, þegar kúgunarandi páfakirkjunnar
var runninn hingað og búinn að festa rætur.

Það lagði hinn fyrsta grundvöll til gullaldarinnar í
íslenzkum bókmenntum, að göfugustu ok mestu framkvæmdamenn
landsins voru lærðir, en að fræðalystin jókst
og hélzt, var mjög mikið að þakka hinu fjöruga ferðalífi.
Ferðalöngunin var þjóðinni innrætt síðan á víkingaöldinni;
enginn þótti sá maður með mönnum, sem ekki hafði í
ungdæmi sínu verið í förum, heimsótt konunga og
stórmenni og barizt í útlöndum sér til fjár og frama.
Framan af áttu margir Íslendingar hafskip og stýrðu þeim
siálfir. Þegar t. d. Þangbrandur kom frá Íslandi og sagði
Ólafi konungi Tryggvasyni frá árangrinum af Íslandsferðinni,
þá varð konungur svo reiður, að hann lét taka
íslenzka menn í Niðarósi höndum og hótaði þeim drápi
og meiðslum, en lét ræna suma; þá er sagt, að þar hafi
verið margir íslenzkir höfðingjasynir og stýrði hver sínu
skipi. [2] Opt er getið um fjölda Íslendinga í Niðarósi; á
dögum Magnúsar berfætta voru eitt sinn 300 Íslendingar


[1] Biskupasögur I., bls. 29

[2] Fornmannasögur II., bls. 206.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 14:45:09 2023 (aronsson) (diff) (history) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/landfraed/1/0052.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free