Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has been proofread at least once.
(diff)
(history)
Denna sida har korrekturlästs minst en gång.
(skillnad)
(historik)
Arngrímur ábóti [1] á Þingeyrum († 1361) hefir ritað
Guðmundarsögu og lýsir þar Íslandi; þó lýsing þessi sé
stutt, þá er hún þó allmerkileg, enda er hún hin eina
almenn lýsing, sem til er af landinu frá fornöldinni.
Aðallýsingin er í byrjun sögunnar og set eg hana hér orðrétta;
síðar í sögunni koma fyrir nokkrar innskotsgreinar, er
lýsa landi og þjóð, og set eg hér hinar helztu aptan við
aðallýsinguna, enda mega þær vel teljast sem nokkurs
konar áframhald, þó þær séu beinlínis sprottnar af
frásögunum um viðburðina, sem sagðir eru í sögunni sjálfri;
landa og þjóðalýsing var í þá daga að eins notuð til þess
að gjöra frásagnirnar um sögulega viðburði greinilegri og
glöggvari. Landlýsing Arngríms ábóta er auðsjáanlega
sett í söguna Guðmundi biskupi til frægðar, til þess að
sýna, hvert mikilmenni hann hafi verið, er hann gat orðið
slíkur »guðs gimsteinn« í jafnhrjóstrugu landi og gæðasnauðu.
Arngrímur lýsir landinu á þessa leið: »Greindr
guðs þjónn (Guðmundur Arason) var biskup á því landi,
er bækr kalla Thile, en Norðmenn nefna Ísland. Má þat
ok vel segjast eiginlegt nafn þeirrar eyjar, því at þar
er íss ínóg bæði lands ok lagar. Á sjánum liggja þeir
hafísar, at með sínum ofvægiligum vexti taka þeir at
fylla norðrhöfin, en yfir háfjöll landsins svá úbræðiligir
jöklar með yfirvættis hæð ok vídd, at þeim mun útrúligt
þykkja, sem fjærri eru fæddir. Undan þeim fjalljöklum
fellur með atburð stríðr straumr með frábærum flaum ok
fúlasta fnyk, svá at þar af deyja fuglar í lopti, en menn
á jörðu eðr kvikvendi. Þau eru fjöll önnur þess lands,
er ór sér verpa ægiligum eldi með grimmasta grjótkasti,
svá at þat brak ok bresti heyrir um allt landit, svá vítt
sem menn kalla fjórtán tylftir umbergis at sigla réttleiði
fyrir hvert nes; kann þessi ógn at fylgja svá mikit myrkr
forviðris, at um hásumar um miðdegi sér eigi handa grein.
Þat fylgir þessum fádæmum, at í sjálfu hafinu, viku sjáfar
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>