- Project Runeberg -  Landfræðissaga Íslands / I. /
80

(1892-1904) [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has been proofread at least once. (diff) (history)
Denna sida har korrekturlästs minst en gång. (skillnad) (historik)


Um þessar ferðir hafa ýmsir vísindamenn ritað fjöldamargar
ritgjörðir (líklega um 100 að tölu) á ýrasum málum.
Mönnum hefir þótt frásögnin mjög merkileg, einkum
vegna sögunnar um fiskimennina frá Frislanda og ferð
þeirra til Estotilanda og Drogio, því það sýnist benda á
kunnugleika um Vesturheim, löngu áður en Columbus kom
þangað. Eins er uppdrátturinn stórum betri en búast
mátti við snemma á 15. öld. Menn hafa haft mjög ólíkar
skoðanir um frásögnina og uppdráttinn; hafa spunnizt
út úr þessu margs konar ritdeilur og vísindalegar
rannsóknir. [1] Flestir hafa haldið, að Frislanda væri Færeyjar;
aðrir hafa haldið, að Frislanda væri Ísland; sumir hafa
leitað að þeim löndum, sem um var getið í bæklingnum,
suður í Slesvig, austur á Rússlandi og jafnvel norður í
Spitzbergen; aptur á móti hafa aðrir ætlað, að ferðasagan
væri að eins tilbúningur, sem hefði verið skrökvaður
upp Venezíumönnum til frægðar, til þess svo liti út, að
þeir hefði fyrr fundið Ameriku en Columbus; Columbus
var, eins og kunnugt er, ættaður frá Genua, og jafnan
var rigur og ófriður milli þessara miklu verzlunarborga.
Flestir þeir höfundar, sem ritað hafa um þetta mál, hafa
verið mjög lærðir, og hafa aukið þekkinguna á fornri
landafræði í mörgum greinum; en litlu vissari hafa menn
fyrir það orðið um aðalefnið.


[1] Jeg nefni hér nokkrar af hinum helztu ritgjörðum um þetta
efni, sem jeg hefi haft fyrir mér auk þeirra, sem áður er getið:
R. H. Major: The Voyages of the Venetian Brothers Nicolò et
Antonio Zeno. The Hakluyt Society. 1873. 8vo. C. Irminger:
Zeno’s Frislanda is Iceland, and not the Færoes (Journal of the
royal geogr. Society. London 1879). C. C. Zartmann:
Bemærkninger om de Venetianerne Zeni tilskrevne Reiser i Norden
(Nordisk Tidskrift for Oldkyndighed II., 1833, bls. 1—35). Japetus
Steenstrup:
Zeni’ernes Reiser i Norden (Aarb. f. nord. Oldk. 1883, bls.
55—214). E. Erslev: Nye Oplysninger om Brödrene Zenis Reiser
(Geografisk Tidskrift for 1884. Kbh. 1885). Fr. Krarup: Om
Zeniernes Reise til Norden (Geografisk Tidskrift II. 1878, bls. 145-154).

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 14:45:09 2023 (aronsson) (diff) (history) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/landfraed/1/0094.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free