- Project Runeberg -  Landfræðissaga Íslands / I. /
85

(1892-1904) [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has been proofread at least once. (diff) (history)
Denna sida har korrekturlästs minst en gång. (skillnad) (historik)

er snertir Miðjarðnrhafið og næstu strendur í kring. Menn
byrjuðu með því að gjöra myndir af höfnum og minni
strandahlutum (portulaner), og skeyttu þær svo saman í
stærri uppdrætti. Þó voru allmiklir gallar á þessum
landabréfum, sem vonlegt var; menn þekktu ekki í þá
daga skekkju segulnálarinnar, og af því leiddi, að
strendurnar færðust rneir og meir úr skorðum, eptir þvi sem
norðar dró; svo var heldur ekki tekið neitt tillit til þess,
að yfirborð jarðarinnar er kúluflötur. Þessi landabréf
voru því engan veginn fullnægjandi í vísindalegu tilliti,
því lega landanna var mjög á reiki sökum þess, að fastar
lengdar- og breiddarákvarðanir vantaði. [1]

Þess hefir verið getið hér að framan, að hinn gríski
landfræðingur, Cl. Ptolemeus, gjörði fyrstur landafræði með
ákveðnum breiddar- og lengdarstigum, og gaf mönnum
með því miklu betri hugmynd en áður um legu landanna
og hnattstöðu. Landafræðisrit Ptolemeusar var ókunnugt
öllum kristnum fræðimönnum fram eptir öllum
miðöldum, en stjörnufræðisrit hans þekktu margir af
útleggingu Araba. [2] Hinn mesti vísindamaður á miðöldunum,
Roger Baco (1214—1292), reyndi þó að ákveða legu staðanna
með breiddar- og lengdarstrykum, án þess hann
þekkti landafræði Ptolemeusar; en ekki varð sú aðferð
algeng fyrir það. Hinn gríski texti af riti Ptolemeusar
varð ekki kunnur á vesturlöndum fyrr en um byrjun 15.
aldar, en þá hafði þetta rit líka svo mikil áhrif, að öll
landafræði breyttist til batnaðar. Um hin næstu 200 ár
kemur út hver útgáfan eptir aðra; [3] hið upprunalega rit
er aukið og umbreytt, eptir því sem þekkingin vex, svo


[1] Þessi »kompáskort« héldust lengst á Spáni og hafnsögumenn
í Miðjarðarhafinu notuðu þau jafnvel fram á 18. öld, sbr. S.
Günther:
Lehrbuch der Geophysik. Stuttgart 1884. I., bls. 273—274.
[2] Þetta rit hét ἡ μεγάλη σύνταξις, en Arabar kölluðu það
Almagest, og var bókin kunnust með því nafni á miðöldunum.
[3] Af landafræði Ptolemeusar hafa komið út 76 útgáfur og af
þeim 69 fyrir árið 1700, sbr. Justin Winsor: A bibliography of
Ptolemy’s geography. Cambrigde Mass. 1884.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 14:45:09 2023 (aronsson) (diff) (history) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/landfraed/1/0099.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free