- Project Runeberg -  Landfræðissaga Íslands / I. /
93

(1892-1904) [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has been proofread at least once. (diff) (history)
Denna sida har korrekturlästs minst en gång. (skillnad) (historik)

Ptolemeusar. Þar er Ísland eins og hálft tungl fyrir vestan
Noreg, beint undan Niðarósi, en norður af Skotlandi (milli
64° og 68° n. br.); slétta kúpan snýr að Grænlandi, en
bugðurnar að Noregi, og eru þeim megin 2 horn til endanna
og tveir hakar nálægt miðju; við það myndast 3
grunnir flóar eða víkur, sem ganga inn í landið að
austan. Textinn, sem fylgir uppdrættinum, er í sama stýl
og landafræði Ptolemeusar, registur nafna og
staða-á-kvarðanir við. Þar eru nefndir Hólar og Skálholt, og um
Ísland er sagt, að þar séu allir hestar hvítir, lítlir og
vakrir, og að þeir eti þurkaða fiska eins og hey. [1]

Á uppdrætti af Norðurlöndum eptir Andrea Bianco
1436, sem geymdur er í Venedig, er eyja fyrir sunnan
Noreg og vestan Jótlandsskaga, sem heitir »ixola tiles« [2]
og er ekki ósvípað á henni lagið eins og á Íslands-uppdrætti
Claudiusar Clavusar, nema hvað eyjan hér er
breiðari. Við vesturrönd uppdráttarins beint á móti
Niðarósi í Noregi er land, sem hann kallar Stoc-fis; ætli þar
sé ekki einhver óljós hugmynd um harða flskinn, sem
Ísland var svo frægt fyrir á miðöldunum? Að minnsta
kosti kemur þettá nafu aptur fyrir á gömlum uppdráttum
og er allt af nálægt Noregi. Eyja, sem heitir Stilanda,
er nokkru sunnar. [3] Á uppdrætti eptir Andreas Benincasa
frá Neapel 1476 er reyndar engin mynd af Íslandi, en
við norðausturhornið á Skotlandi er kringlótt eyja, sem
hann kallar »isola de till«. [4]

Fra Mauro var uppi um fyrri hluta 15. aldar i Venedig;
hann var álitinn einhver hinn merkasti landfræðingur
i þá daga og kunni snilldarlega að draga upp og penta


[1] Nordenskiöld hellr látið gjöra eptirmynd (facsimile) af
landabréfi Claudíusar Clavusar og af textanum, sem því fylgir, og er
það aptan við rit hans Om bröderna Zenos resor.
[2] A. Bianco segir, að ey þessi sé óbyggileg; á sumrum geti
þar ekkert vaxið fyrir hita, en á vetrum ekkert fyrir kulda sakir.
Þetta er líklega endurminning um frásagnir fornhöfundanna um
Thule.
[3] A. E. Nordenskiöld: Om bröderna Zenos resor., bls. 37.
[4] I. Lelewel: Géographie du moyen age. Atlas.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 14:45:09 2023 (aronsson) (diff) (history) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/landfraed/1/0107.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free