- Project Runeberg -  Landfræðissaga Íslands / I. /
132

(1892-1904) [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

[132

milli, sjái Hekluhöfða öðrum megin við sundið, en Hvit-

f

serk hinum megin.1 I þá claga tóku menn allar
frásög-ur gildar, hvort sem þær voru náttúrlegar eða
ónáttúr-legar; menn voru ekki að hafa fyrir að sundurliða það;
optast mun þó eitthvað liggja til grundvallar fyrir
sög-unum. Þar sem Ziegler talar um fitu sauðfjár á Islandi,
er það líklega svo til komið, að þýzkir kaupmenn hafa
heyrt getið um eða séð feita sauði, þegar þeir á
haust-degi voru reknir af fjalli. Sagan um pislir sálna í
eld-fjöllum er algeng alstaðar, og menn trúðu því fastlega á
þeim tímum, að svo væri, bæði hér á landi og
annars-staðar; sagan um svipi drukknaðra manna er alíslenzk,
og ekki örgrannt, að sumir menn á útkjálkum á Islandi
trúi sliku enn.2

Arið 1544 gefur Sébastian Múnster út landafræði
(cosmografi), sem lengi á eptir var aðalrit i þeirri grein.
Sebastian Miinster þótti merkismaður á sinni tíð; hann
var fæddur í Ingelheim 1489 og dó i Basel 1552; hann
þótti framúrskarandi guðfræðingur og stærðfræðingur; en

x) Gamlar sagnir um leiöir til Grænlands segja hiö sama um
fjarlægdina milli Grænlands og Islands, en þar er reyndar talið, að
Snæfellsjökull sjáist á Islandi (en ekki Hekla). Það er sagt, ad
sira Einar Snorrason á Staðarstað (f 1538) kaíi átt tólfæring, er rak
undan Öndveiðarnesi og dreif i haf út, svo að þeir sáu báða
jökl-ana senn, Snæfellsjökul og Bláserk (Grönlands hist. Mindesm. I.,
bls. 123, sbr. bls. 88). A öðrum stað er sagt, að séu menn í miðju
haíi, sjáist Snæfellsjökull öðru megin, en Hvitserkur hinu megin
(s. st. III., bls. 490-491). Olaus Magnus segir, að Hvítserkur sé
mitt á milli Islands og Grænlands, og segir, að tveir alræmdir
vik-ingar, Pining og Pothorst, haíi haft aðsetur þar 1494. Nánar um
þetta má lesa i Grönl. hist. Mind. III., bls. 473-81.

Eg heíi haft fyrir mér útgáfu af Ziegler, sem prentuð er aptan
við Alberti Krantzii Regnorum Aquilonarium Daniæ, Sueciæ,
Norua-giæ Chronica. Francofurti ad Moenum 1575. Fol. (bls. 480-481).
Jacob Ziegler var fæddur í Landshut 1480 og dó í Passau 1549;
hann ferðaðist töluvert um Suðureurópu, en helir liklega aldrei
komið til Norðurlanda. sbr. Norsk Historisk Tidsskrift, 2. Række
VI., bls. 331-36.

») Sbr, Andvari XIII. 1887, bls. 200.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 14:45:09 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/landfraed/1/0146.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free