Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
m
þrem eldfjöllum, og er eitt þeirra kallað Hekla og ann-
að Krossfjall (eins og hjá Mtinster); við tindana stendur
skrifað »nix« (snjór); undir miðfjallinu er skrifað »Chaos«
(óskapnaður), og á það líklega að tákna
jarðelda-samsull-ið undir fjallinu. Þetta sama orð er á landabréfinu og
hefir verið fiutt, sem staðarnafn, á ýms önnur landabréf.
Við rætur fjallanna eru logar og út undan þeim renna
lækir, og eru þrír katlar settir þar hjá, en maður er að
ganga upp stiga upp í helli eða gjá undir miðfjallinu.
Læk-irnir eiga liklega að vera heitar uppsprettur, kerin ef til
vill baðker, ef þetta ekki táknar einhverja óljósa
hug-mynd um brennisteinssuðu? Hið siðara er iiklegra eptir
uppdrættinum 1539.
r
I þriðja kapítula i sömu bók (bls. 62) kemur nánari
lýsing á íslandi; segir hann frá legu landsins og tekur
svo klausur úr Saxó; hann segir, að landið liggi frá noröri
til suðurs, og sé 100 þýzkar mílur á lengd; eyjan er að
mestu leyti fjöllótt, segir hann, og óræktuð, einkum móti
norðurátt, af snörpum blæstri norðvestanvindsins, sem
jafnvel ekki leyfir runnunum að vaxa að mun. Síðan
tekur Olaus Magnus hér um bil orðrétta draugasöguna
úr Ziegler, og hefir mynd fyrir ofan þessu til frekari
skýringar. Seinna i bókinni lýsir hann íslendinguin.
t
Islendingar eru, segir hann, heilsugóðir, glaðværir og
frjálslyndir og hafa lengstum verið án læknislyfja; lifa þeir
jafnvel yfir hundrað ár; grípa þeir til vopna af litlum
orsökum og heyja allgrimmar styrjaldir; þeir eru við
öll-um herferðum jafnt búnir, hvert þær eru á fæti eða hesti,
hvernig sem á stendur. (21. bók, kap. 4. bls. 733).
Olaus Magnus segir það sé ákveðið með lögum á
Is-landi, að hver sá, er drepur skaðlegt kvikindi, fái
verð-laun af ríkisfé eða lijá landstjóra, og fer upphæð
verð-launanna eptir grimmd skepnunnar, sem drepin er. Hann
r
segir, að á Islandi séu fleiri hvitir hrafnar en i öðrum
löndum, og að þeir drepi opt lömb og smágrísi, en
ung-lingar skjóti hrafnana með boga; síðan sýni þeir
fyrir-mönnum eintóm nefin af hröfnunum, þrædd upp á snæri,
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>