- Project Runeberg -  Landfræðissaga Íslands / I. /
140

(1892-1904) [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

[154

innan um, þá er þó aðalefnið rétt og bendir á töluverða

t

þekkingu á Islandi.

Arið 1886 fann Oscar Brenner stórt landabréf af

Norðurlöndum í landsbókasafninu i Miinchen; það var

eptir Olaus Magnus G-othus, og á þvi ártalið 1539. Menn

vissu reyndar, að Olaus Magnus hafði gert stóran upp-

drátt af Norðurlöndum, en uppdráttur þessi var horfinn

i meir en 300 ár; lítill uppdráttur fvlgdi reyndar þeirri

útgáfu af bók hans, sem út var gefin í Basel 1567, og

héldu menn, að þetta litla kort væri rétt eptirmynd af

hinum upprunalega uppdrætti, en því fer fjarri. Upp-

dráttur Olaus Magnusar er mjög merkilegur, og skýrir að

mörgu leyti sögu landabréfanna á 16. öldinni. Eg verð

hér að fara mjög fljótt yfir, og að eins geta þess, sem
t

snertir Island beinlínis.

A uppdrætti þessum er ísland aflangt frá SV til NA,
en inn í það ganga margir smáfirðir; þar eru margar
myndir á landinu, sem eiga að tákna ýmislegt, og eru
þær flestar hinar sömu eins og í bókinni (útg. 1555).
Suður með landinu að austan eru að reka stórir isjakar,
og á ísnum syðst eru tveir stórir hvitabirnir; annar er

að eta fisk. A nvrzta odda landsins situr maður, sem er

t) /

að leika á fiðlu, og koma fiskar og sjófuglar (álptir ?)
syndandi, er þeir heyra hljóminn; þar fyrir sunnan er
refur að hlaupa yfir landið, og svo eru sýnd op á
hell-um, sem íbúarnir búa í; á ströndinni fvrir neðan eru

7 7 t/

brynjuðu riddararnir, sem myndin er af i bókinni; fyrir
vestan hellana er ríðandi maður, en fvrir sunnan tvö

7 v

t

vötn, og á hverju þeirra maður á bát. A miðri norðvestur-

ströndinni sitja tveir fuglar, sinn á hverju nesi, og stendur

við annan þeirra orðin »hvítir fálkar«, en við hinn »hvítir

t

hrafnar« ; þar hjá er skjaldmerki Islands, krýndur fisk-

ur, og skjaldmerki Noregs, krýnt ljón með öxi, en þar

t

vestur af er hvitabjörn i helli. A suðvesturhluta
lands-ins eru eldfjöllin, sem mvndin er af í bókinni, með snjó hið
efra og eldi hið neðra; þar eru klettar reglulega lagaðir
með liöggnu letri; þar sést Helgafell, smjörtunnurnar,

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 14:45:09 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/landfraed/1/0154.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free