- Project Runeberg -  Landfræðissaga Íslands / I. /
142

(1892-1904) [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

[142

af því þeir imdruðust, hve þekkingin á Norðurlöndum
var þar miklu meiri en á öllum kortum fyrri manna,
eptir því sem menn þá bezt vissu, því þá þekktu menn
ekk uppdrátt Olaus Magnusar, og höfðu enga vitneskju
um, hvernig hann hefði verið; nú sjá menn aptur, að
Zeno hinn yngri hefir beinlinis brúkað kort Olaus
Magn-usar, án þess þó að geta um það; hann hefir þó tekið
sumt eptir öðrum uppdráttum og gert margar
breyting-ar, eptir því sem honum þótti þurfa eptir ferðasögunni.
Það er ekki gott að segja, hvað satt er í frásögninni um
ferðir Zenibræðranna, en líklega liggur þó einhver snefill
af sannleika til grundvallar; hafi þeir nú ferðazt hér um
norðurhöf, þá hefír endurminningin verið orðin svo rugluð
hjá Nicolo Zeno yngra, að allt hefir orðið að lirærigraut
og sundurlausúm molum, og hefir hann svo skáldað inn
í eyðurnar, og verður liklega aldrei hægt að skilja
hism-ið frá hveitinu. Zenikortið hefir þó haft fjarska mikil
áhrif á landafræðina á 16. og lT.öld, af þvi menn þekktu
ekki frumrit Olaus Magnusar, en notuðu að eins
ráng-færða og umsnúna eptirmynd, sem var eignuð öðrum.
Ailflest landabréf frá Suður Európu frá 16. aldar seinni
hluta og fyrri hluta 17. aldar bera þess vott, að
höfund-arnir hafa farið eptir Zeni-kortinu; á Zeni-kortinu eru
mörg lönd í Atlantshafi, sem aldrei hafa verið til, og
ganga þau aptur á hverju iandabréfi eptir annað, allt
fram á 18. öld. Þegar Frobisher var í landaleit i
norð-urhöfum 1576, hélt hann, að suðurhluti Grænlands væri
sérstakt land, og væri það Frisland, það sem dregið er
upp áZenikortinu; lengi fram eptir héldu menn, að sund
væri á milli suðurhluta Grænlands og Norður-Grænlands,
og kölluðu það Frobisher-suncl; þetta sýnir meðal annars,
hverju ruglingurinn á Zeni-kortinu hefir komið til leiðar.
Island er orðið æði mun afkáralegra á Zeni-kortinu, heldur
en á uppdrætti Olaus Magnusar; höfundur eða útgefandi
Zeniferðanna hefir misskilið frumritið stórkostlega.
Hafis-jakarnir austan við Island eru orðnir að eyjum (Bres,
Mimant o, s. frv,); nöfnin eru öll meira eða minna af-

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 14:45:09 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/landfraed/1/0156.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free