- Project Runeberg -  Landfræðissaga Íslands / I. /
165

(1892-1904) [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

[165

lendingum hesta, skinnavöru, rostungstennnr og hvaltenn-

ur, nema þeir hafi áður boðið þær lénsmanni konungs og

hann hafi eigi viljað kaupa; hver sem braut þetta boðorð,

átti að gjalda jafnmikið og vörurnar voru verðar, »og

þar til straffast sem við ber*.1 Sama árið (1563) krefst

konungur þess, að Hamborgarar borgi sér 30,000 dali, er

áttu að vera heimanmundur systur hans; en þegar þeir

eigi vilja borga, hótar konungur þeim að banna alla

t

þýzka verzlun á Islandi; samt varð ekki af því, þó pen-

ingarnir ekki fengjust.8 Það er auðséð á öllu, að kon-

ungur finnur svo styrk sinn, að hann þykist geta boðið

Hamborgarmönnum byrginn, enda var vald þeirra þá

mjög að þrotum komið.

Næsta stig sem konungur stígur erþað, að hann ekki

t

levfir ótakmarkaða verzlun á Islandi, heldur levfir sérstök-

t/ / XJ

um mönnum, þýzkum eða dönskum, að verzla á einstök-

um höfnum, en eigi annarstaðar; þessi siður hélzt út öld-

ina og eru enn þá til mörg slík leyfisbréf fyrir einstaka
t

menn. Islenzka verzlunin hlýtur í þá daga að hafa
ver-ið mjög arðsöm; það sést á því, hve ólmir Hamborgarar
eru í að halda henni og vilja heldur allt til vinna en
missa hana, og á því, að ýmsir stórhöfðingjar fá leyfi til
þess að láta verzla á ýmsum höfnum; 1585 fær t. d.
Hans greifi af Oldenburg leyfi til þess að láta verzla á
Kumbaravogi, og 1584 fær Hinrik erkibiskup í Bremen

leyfi til þess að verzla á Grundarfirði. Þetta utlán á ein-

t

stökum höfnum líkaði Islendingum miður, og báðu
stjórn-ina 1593 að leyfa kaupmönnum að sigla á hverjar
hafn-ir, er þeir vildu, en landsmenn fengu eigi áheyrn.
Við-vikjandi þessu atriði komst ríkisráðið svo að orði (Christian
IV. var þá á barnsaldri): »Epter því það kann að finnaz
landinu og þess Innbyggiurum að vera til hins mesta
skaða og fordiörfunar, að það skule vera hvörium manne
heimilt að sigla til landsins án vorra Passabrefa, því

’) Magnús Ketilsson: Forordninger II., bls. 18-20. Lovsamling
for Island I., bls. 78-79.

2) E. Baasch; Hamb. Handelsgesch. I., bls. 42-43.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 14:45:09 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/landfraed/1/0179.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free