- Project Runeberg -  Landfræðissaga Íslands / I. /
167

(1892-1904) [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

[167

og þýzkar skipshafnir, af því þeir gátu ekki rekið
verzl-t

un til Islands af eigin ramraleik, og auk þess urðu þeir

að selja vörur sínar í Hamborg eða með milligöngu þýzkra

kaupmanna; þannig gekk arðurinn af islenzku verzlun-

inni ekki úr greipum Þjóðverja, þó þeir misstu réttinn

til beinnar verzlunar; skellirnir mestu lentu á islenzkri

aiþýðu; hún varð að borga beinlínis og óbeinlínis allan

þann kostnað, sem þessi nýi danski verzlunarmilliliður

hafði í för með sér; hún fékk verri og dýrari vörur, og

varð að þola hið þrælslegasta ófrelsi í öllum viðskiptum.

Hér höfum vér ritað þetta stutta ágrip um verzlun

Þjóðverja,1 til þess að gera ljóst það samband, sem í þá

daga var milli Þjóðverja og Islendinga; það lítið sem
rit-t

að er um Island á 16. öld, á rót sína að rekja til þess-

ara verzlunarviðskipta; Þjóðverjar komu hingað að eins

til þess að græða fé, og því er sönn þekking þeirra á

landinu ekki mikil; Þjóðverjar áttu mest saraan að sælda

við sjómannalýðinn i sæþorpunum, og því bera þeir Is-

lendingum optast illa söguna, og lýsa þeim eins og skræl-

ingjum. Islendingar af betra taginu kynntust i þá claga

lika töluvert háttum og siðum hinna æðri stétta á Þýzka-

lancli, enda ferðuðust margir til Þýzkalands og Hollands.

Um siðbótartímann voru hin beinu áhrif frá Þjóðverjum

á menntun íslendinga töluverð. A 16. öld stunduðu ýmsir
t

Islendingar bóknám á Þýzkalandi, og bæði á þeirri öid
og hinni næstu fóru íslendingar miklu raeir til annara
landa i Európu, heldur en seinna varð; sambancl
Islend-inga við meginland Európu og ferðir þeirra þangað liafa
eflaust mjög stutt að endurreisn islenzkra bókmennta
eptir siðabótina. í latnesku sögubroti um Jón biskup
Ara-son er þess getið, að islenzkir biskupar og ábótar hafi
sumir fengizt við bóknám á Englandi, Frakklandi og
Þýzkalandi.2 Eins og kunnugt er, var Ögmundur biskup

Um verzlun Þjóðverja eru til ótal skjöl og skilríki, prentud
og óprentuð og væri vonandi, að þess væri ekki langt at) bíða, að
vér feugjum fullkomna verzlunarsögu íslenzka.

2) Biskupasögur II., bls. 4’27.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 14:45:09 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/landfraed/1/0181.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free