- Project Runeberg -  Landfræðissaga Íslands / I. /
169

(1892-1904) [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

[169

Það voru ekki eingöngu klerkar, sem ferðuðust til

Þýzkalands á 16. öldinni; fjöldainargir leikmenn af æðri

og lægri stéttum fóru þangað til að menntast eða í öðr-

um erindum, og sumir staðfestust á Þýzkalandi. Hannes

Eggertsson, sonur Eggerts riddara, bjó 13 ár í Altona og

ýmsir afkomendur hans voru sumpart á Islandi, sumpart

i Hamborg. Magnús Jónsson hinn prúði var á yngri ár-

um mörg ár á Þýzkalandi og Páll bróðir hans (Staðar-

hóls-Páll) sigldi opt, og er sagt um hann, að hann hafl

verið »góður þýzkurcc.1 Jón Gissurarson sagnfræðingur

sigidi i ungdæmi sinu, og var »vel forframaður i þýzku«,

en Magnús bróðir hans nam læknislist eða varð bartskeri,

sem þá var kallað.2 Gisli Gunnarsson, dóttursonur síra

Magnúsar Jónssonar, Arasonar biskups, stúderaði á Þýzka-

landi, og Páll bróðir hans drukknaði í Hamborgarelfi ;3

þeir voru bræður Solveigar, fyrri konu Arngríms lærða.

Benedikt Pálsson, sonarsonur Guðbrands biskups, lærði

bartskeraíþrótt i Hamborg, og sigldi svo til Spánar, en

var hertekinn af Tyrkjum, og var hjá þeim í þrjú ár;

»var svo leystur af Hamborgurum og útborgaður af frænd-

um sinum og vinum hér fyrir litið miður en 1000 clali«.4
; /

Arni Arnason var bartskeri i Hamborg og giptist þar.5
t

Eiríkur Arnason, umboðsmaður i Skriðuklaustri og sýslu-

maður, flutti sig til Hamborgar 1579, og giptist þar 1
t t

annað sinn.6 A 16. og 17. öld fóru margir Islendingar
til Englands og Hollands. Björn Gislason (vísa Gisla-)
sýslumaður i Barðastrandarsýslu og Magnús Jónsson
sýslu-maður í Strandasýslu sigldu til Hollands og menntuðust

Annálar Björns á Skarðsá, bls. 164-65.

2) Annálar Björns á Skarðsá, bls. 161. Safn I., bls. 645.

3) Biskupasögur II., bls. 386.

4) Biskupasögur II., bls. 701.

5) Biskupasögur II., bls. 392. Bartskerar voru í þá daga
nokk-urs konar handlæknar; á verzlunarskipum Þjóðverja voru
bai’tsker-ar opt í læknis- og prestsstað (Niederdeutsches Jahrbuch IX.,
bls. 111.

6) Jón Þorkelsson: Digtningen pá Island i det 15. og 16.
Ar-hundrede. Iíbh. 1888, bls. 413.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 14:45:09 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/landfraed/1/0183.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free