- Project Runeberg -  Landfræðissaga Íslands / I. /
179

(1892-1904) [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

[179

þær og skröksögur, sem í lienni eru; Blefken ber
íslend-ingum mjög illa söguna. Þó bókin í sjálfu sér sé sérlega
ómerkileg, neyðumst vér þó til að tala nokkuð nánarum
hana, af því hún hafði mjög mikil áhrif á hugmyndir
útlendinga um ísland, var gefin út í fjölda mörgum
út-gáfum og útleggingum, og varð til þess, að Arngrímur
lærði ritaði bók, til þess að hrekja allar þær lygar, sem
i henni voru. Ferðasaga Blefkens er líklega tilbúningur
frá upphafi til enda; hún er samsull af lygasögum, sem
Blefken hefir heyrt hjá sjómönnum eða lesið í eldri
rit-um, og er mjög efasamt, hvert höfundurinn hefir nokkurn
tíma komið til Islands; Guðbrandur biskup og
Arngrím-ur lærði sanna, að hann hefir ekki komið til Islands á
þeim árum er hann segir, en það er þó ekki með öllu
ómögulegt, að hann hafi einhvern tíma fifekzt hingað á
einhverjar hafnir með þýzkum verzlunarskipum; en hafi
hann komið, hefir hann líklega komið mikið seinna en
hann segir; Arngrímur heldur, að Biefken segist hafa

skrifað bókina og komið til Islands svo snemma i því

t

skyni, að þeir sem þekktu Island 1607, skyldu fremur
trúa þvi, er hann segir um hag landsins 44 árum áður.1
Blefken segist lýsa öliu eptir sjón og reynd, og er þó
auðséð, að hann skrökvar sumu vísvitandi; i þá daga
voru slíkar lognar ferðasögur ekki óalgengar; þegar lýst
var fjarlægum þjóðum og löndum, þurftu höfundarnir ekki
að óttast, að landar þeirra vefengdu söguna, þvi lærðir
menn og leikir voru á þeim öldum fiestir ákaflega
auð-trúa. Nú á dögum getur slíkt ekki haldizt lengi uppi;
þó eru þess nokkur dæmi á þessari öld, að logið hefir
verið upp heilum ferðasögum um Afríku og önnur
fjar-læg lönd, og hafa jafnvel fróðir menn látið glepjast af
sliku, þegar líklega hefir verið logið.

Eptir þvi sem Blefken segir, hafa örlög bókarinnar,
áður en hún kom út, verið mjög merkileg; segir hann frá
öllum lirakningunum i formálanum. Biefken kveðst hafa

Anatome Blefkeniana. Hamburgi 1618, bls. 24-25.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 14:45:09 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/landfraed/1/0193.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free