- Project Runeberg -  Landfræðissaga Íslands / I. /
184

(1892-1904) [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

[184

þyki bezt. Á vetrum, á undan og eptir vetrarsólstöðum

(frá 12. nóv. til 9. febr.), segir Blefken, að ekki sjáist

sól, og sé þá engin skíma nema af tungli og stjörnum;

’aptur á móti er þar engin nótt um vorsólstöður. Á vetr-

um iig’gja Islendingar marga daga i rúminu og tefla skák

og bera þjónustumenn þeim tilbúinn matinn í rúmið; sumir

hafa lýsislampa, sumir kerti. í febrúarmánuði kemur

sólin upp fyrir sjóndeiidarhringinn, og fer þá dagurinn

t

smátt og smátt að lengjast; þá byrja Islendingar að fiska,

og er þá svo mikill urmull af fiski, að þvi nær er ótrú-

legt; fiskarnir, sem samfleytt i þrjá mánuði hafa synt í

myrkri, flykkjast að önglunum og krækjast þeir eigi að

eins i kok þeirra, heldur hér og hvar i skrokkinn og eru

þeir svo drepnir; siðan taka menn úr þeim beinin, inn-

ýflin og fituna, hlaða þeim upp undir beru lopti, og svo

er loptið hreint, að flskarnir þorna og harðna saltlaust

af vindi og sólskini, og það betur en þó þeir væru lagðir
t

í salt. Ef Islendingar slátra skepnu, þá herða þeir kjötið
i vindi og gevma það, án þess það úldni eða rotni.

Fjórði kapítulinn er um undarlegar tjarnir og
upp-sprettur á Islandi. Um allt ísland segir Blefken að séu
sjóðandi uppsprettur; þegar vatnið kólnar, sezt úr því
brennisteinn; þó vatnið sé svo heitt, að ekki sé hægt að
halda niðri í því fingri, þá sjást þó langt að syndandi
rauðir fuglar á því, en ef komið er nær, hverfa þeir, en
koma upp aptur, þegar maður er genginn burt; þannig
leika þeir heiia daga á menn.1 Á Vesturlandi er stórt
kalt vatn sem rýkur úr, og allt sem í það er látið
verð-ur að steini; ef staur errekinn niður i það, er neðsti hluti
hans, sem í jörðu er, á tveim dögum orðinn svipaður
járni og harður sem járn; sá hluti hans, sem er í vatni
verður likur steini, en það sem upp úr er breytist ekki.
Þetta segist Blefken sjáifur liafa séð, en þegar hann setti

4) Þessi þjóðsaga urn hverafugla heíir lengi haldizt; Eggert
Ólafs-son getur opt um þá (Reise gjennem Island II.. bls. 890, 898, 896)
og eg heíi sjálfur talað við alþýðumenn, sem eru sannfærðir um,
að slíkir fuglar sjeu til og þykjast jafnvel hafa séð þá.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 14:45:09 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/landfraed/1/0198.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free