Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
[203
æfilok hans, því dauða hans bar að á sérstakan hátt.
Sigurður skólameistari reið á öndverðum vetri nokkuð
ölvaður frá Mosfelli heimleiðis með sveini sínum Ormi
Narfasyni; við Brúará dvaldist ferjumanni, svo þeir urðu
að bíða; lögðust þeir þá til svefns við ána og veltist Sig-
urður sofandi í ána og drukknaði; Ormur fylgdarmaður
hans gat þó lítið sagt um, hvernig þetta atvikaðist, því
hann svaf líka.1 Var mönnum mjög tiðrætt um þenna
atburð, og var það trú alþýðumanna, að álfar mundu
hafa orðið honum að bana. Sigurður hafði ritað um álfa
og sögðu menn, að álfarnir mundu hafa hefnt sín á hon-
um fyrir það, að hann hefði ljóstrað upp leyndarmálum
þeirra. Líkami Sigurðar fannst síðar hjá Laugum við
Brúará, og var hann grafinn í forkirkjunni í Skálholti.2
Sigurður Stefánsson var ágætt latinuskáld, söngmað-
ur og málari; hann hafði meðal annars snúið Samúels-
bókum í latnesk ljóð, og orti latínskt kvæði til Arngríms
lærða, sem prentað er aptan við »Brevis Commentarius
de Islandia«. Sigurður hafði einnig skrifað um íslenzka
réttritun, og 1591 reit hann bók um álfa, drauga, svipi,
vættir og forynjur;3 hefir þetta rit líklega verið sniðið
eptir útlendum bókum, því í þá daga var álfa- og drauga-
trúin viða erlendis, af sumum beinlinis, skoðuð sem vis-
indagrein, og svipum og draugum lýst eins og áþreifan-
f
legum hlutum. Sigurður Stefánsson ritaði líka Islandslýs-
r
ingu og gjörði uppclrátt af Norðurhöfum. Islandslýsingin
er liklega týnd; Þórður Þorláksson segir, að lýsing þessi
hafi verið í eigu Þormóðar Torfasonar, en hvað síðan
Ormur Narfason var sonur Narfa bónda Ormssonar í
Reykja-vík; bann vígbist 1600 og fékk Borg á Mýrum og svo
Breiðabóls-stað á Skógarströnd 1620.
2) Æfi Skálboltsrektora eptir Jón Halldórsson í Jóns
Sigurðs-sonar handritasafni nr. 380 og 323. 4to og víðar. Sbr. J. Thorchillii
Specimen Islandiæ non barbaræ. J. S. hdrs. nr. 333. 4to, bls. 161.
s) Hdlfddn Einarsson: Sciagraphia historiæ literariæ islandicæ.
Havniæ 1777, bls. 15, 61, 148, 163-64. Finnur Jónsson: Historia
ecclesiastica III., bls. 176.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>