Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
[205
eptir frumbréfinu; fyrirsögnin sýnist benda tíl þess; hefir
ártaiið ruglazt hjá þeim, er dró upp myndina, enda hefir
það ef til vill verið óglöggt i frumritinu.1
Guðbrandur biskup Þorláksson fékkst töluvert við
r
landfræði Islands, og er hinn fyrsti, sem gjörir
vísinda-legar athuganir þar að iútandi; þetta er almenningi siður
kunnugt en önnur störf hans, er snerta kristindóm og
siðabót, entia er Guðbrandur biskup margra hiuta vegna
einn að hinum merkustu mönnum, sem uppi hafa verið á
íslandi. Hér skal að eins geta æfiatriða hans
laus-lega.2 Guðbrandur biskup Þorláksson var fæddur að
Staðarbakka i Miðfirði árið 1542; faðir hans var
Þoriák-ur prestur Hallgrímsson, er seinna varð prestur að
Þing-eyraklaustri; móðir hans var Helga Jónsdóttir lögmanns
Sigmundarsonar. Eiiefu vetra fór Guðbrandur í
Hóla-skóla og var þar 6 ár; eptir það var hann tvo vetur
heyrari við Hólaskóla, og sigldi siðan til
Kaupmannahafn-ar vestur á Patriksfirði; var hann að eins tvo vetur við
háskóiann, og sneri svo heim aptur 1564, og varð
skóla-meistari i Skálholti um haustið; var hann hinn fyrsti
ís-lendingur, er sökum latinulærdóms var álitinn fær til þess
embættis, þó eigi væri hann þá nema 22 ára gamail.
Þessu embætti gegndi hann í 3 ár, en vígðist 1567 til
A 16. öld hafa líklega fáir átt landabréf á íslandi; i
Sigurð-arregistri eru taldar bækur á Hólum við ýmsar úttektir, en bvergi
eru þar nefndir landsuppdrættir nema á einum stað : á
Munkaþver-árklaustri var til 1550 »eitt landablað« (bl. 14a).
2) Af ritum þeim, sem eg beíi stuðztvið, eru, auk árbóka Jóns
Espólins, þessi hin helztu: Finnur Jónsson: Historia ecclesiastica
III., bls. 368-443. P. Pjetursson: Æliágrip Guðbrandar biskups í
Arsriti prestaskólans 1850, bls. 123-84. Arngrimur Jónsson:
vacía Gudbrandi Tborlacii. Hamburgi 1630. 4to. Æíi Hólabiskuj^a
eptir Jón Halldórsson, og auk þess ýmislegt um æíi Guðbrands
biskups i handritasafni Jóns Sigurðssonar t. d. í nr. 380, 333, 523,
494, 4b5. 4to og víðar. Jón Halldórsson segir, að Arni Magnússon
haíi ritað æíisögu Guðbrands biskups, en hún brann 1728. Það væri
mjög æskilegt, að einhver ritaði ýtarlega æiisögu Guðbrands
bisk-ups; til þess eru mörg skjöl og skilríki bæði í söfnum hér og
er-lendis.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>