- Project Runeberg -  Landfræðissaga Íslands / I. /
216

(1892-1904) [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

[216

legt var. Séra Jón Einarson orti brag um ferðina, er
byrjar svo:

Rituðust forðum rímur og sögur
um röskva drengi og hreystimennn o. s. frv.

Þriðja erindið er svo:

Kunnir voru að karlmannshörku
kapparnir um æíistund,
ekki íjarri eyðimörku
uppólust við síldargrund;
vantaði hvorki afl né orku
ofurhuga í sinni lund.

Og seinast i bragnum stendur:

Ekkert náði eptirliggja.
unga menn sem prýddi þá.

Kolbeinsey er að eins sker eða lítill hólmi og segir í
bragnum, að þeir Hvanndalabræður hafi mælt það með
vað, og reyndist þeim hólminn 400 faðmar á lengd
og 60 á breidd; grastó var þar engin, en skerið var
hrjóstrugt með hólum og gjótum, en allt hvitt af fugli.
Þegar þeir fyrst sáu eyna i fjarska, héldu þeir, að þar
væri hafskip á siglingu, en svo var eigi:

Eylands var það efsti balinn,
alhvítur aí bjargfýling;
augun fengu hann ekki talinn,
eins og sæi á fífubyng.

Frá Kolbeinsey var land allt horfið nema þrjár þúfur.
Þegar þeir fóru frá eynni, fengu þeir hagstæðan byr,
farnaðist vel og tóku land á Maríumessu.1 Seinna hafa
menn opt farið til Kolbeinseyjar; Olavius getur þess,2 að
menn hafi farið þangað á vorin á áttæringum eptir dún,

J) Jón Espólín segir, að þeir Hvanndalabræður hafi farið þrjár
ferðir til Kolbeinseyjar, en Jón Einarsson getur eigi nema tveggja.
Bjarni Tómasson drukknaði 1617 með annan mann á Skagafirði:
»þeir fóru fram á haf til fiskjar tveir, sem Bjarni hafði svo opt
leikið á stórum dirfsku sjóferðumc. Annálar Björns á Skarðsá,
bls. 196.

2) Oeconomisk Reise, bls. 323.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 14:45:09 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/landfraed/1/0230.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free