Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
[229
Arngrímur lærðí var fríður maður og hö fðinglegur;
mvnd af honum á 28. ári, teiknuð af Dedekennus, er
framan við bókina »Specimen Islandiæ historicum«.
Arn-grímur varð nokkuð feitlaginn, en bar sig vel; menn segja
að hann hafi verið fremur drembilegur og þóttalegur í fasi
og framgöngu;1 hann var skrautmaður og er sagt um hann,
að hann hafi látið syni sína ganga í kápum2 þegar á unga
aldri. Arngrímur var gott latínuskáld og var hinn fyrsti
Islendingur eptir siðaskiptin, sem orti til muna á latinu;
eptirmæli hans eptir Guðbrand biskup Þorláksson eru
prýðisfögur; hann orti líka töluvert á íslenzku,3 en ekki
þótti mönnum eins mikið til þess koma. Páll Vidalín
dótt-ursonur hans líkti skáldskap afa síns við óheflaða staura,
rekna saman með ryðguðum járngöddum.4 Margir af
af-komendum síra Arngríms voru ágætlega skáldmæltir.
Arngrímur Jónsson er vanalega kallaður Arngrímur
hinn lærði og það er enginn efi á því, að það er rétt-
Jón frá Grunnavík segirþessa sögu því til sönnunar: »Einu
sinni á alþingi var síra Arngrímur að ganga einsamall fram og
aptur um lögréttueyrina, en síra Hallgrímur Pétursson lá þar uppi
í liallanum og var ab tala við ýmsa menn og gamna sér við
smá-drengi, og sá síra Arngrím niðri á eyrinni; orti hann þá stöku
þessa:
Eins og forinn feitur, fénu mögru hjá,
stendur strembileitur stórri þúfu á,
Þegir og þykist frjáls, þetta kennir prjáls,
regir hann sig og réttir upp róuna til hálfs,
sprettir úr sporum með státi og sparðar af gi~avitáte«.
I kvæðum Stefáns Ólafssonar I., bls. 74-75 er vísan prentuð og
eign-uð síra Stefáni, en mér þykir allt eins líklegt, að það sé rétt, er
Jón Grunnvíkingur segir, að hún sé eptir Hallgrim Pétursson; en
í sjálfu sér er nú samt þýðingarlaust, eptir hvern hún er; hún sýnir
hugmyndir sumra um Arngrím.
2) A mynd þeirri af Magnúsi prúða og börnum hans, sem áður
var í Haga á Barðaströnd, en nú er á Forngripasafninu, eru börnin
líka í kápum.
3) Sbr. Jón Þorkelsson: Digtningen pá Island, bls. 473-79.
4) Arni Magnússon sagði um kvæði Arngríms: »Arngrimo
de-mas carmina, major erit« (takirðu kvæðin af Arngrími, verður hann
meiri maður).
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>