- Project Runeberg -  Landfræðissaga Íslands / I. /
231

(1892-1904) [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

[231

ritningunni; átti það stundum varla víð efnið eða var að
eins til óþarfra málalenginga; en það var tízka lærðra
manna í þá daga, að sýna lærdóm sinn á þennan hátt.

Arngrímur Jónsson er hinn fyrsti íslendingur, sem

stundaði sagnfræði og fornfræði íslands, og öll rit hans

eru að mestu leyti sögulegs efnis; af því hann ritaði á

latínu, varð hann brátt kunnugur erlendis, og vakti hann

fyrstur með bókum sínum áhuga útlendra og innlendra

fræðimanna á sögu og fornfræði Norðurlanda, svo sumir

útlendingar fóru jafnvel að læra dálítið i íslenzku. Árið

/

1596 býður konungur Islendingum að láta af hendi við
Arngrím afskript’r af fornritum, bréfum og skjölum; átti
Arngrímur að snúa þeim á dönsku og senda sagnaritara
konungs Niels Krag, sem ætlaði að rita sögu Danmerkur
og um afreksverk konunganna.1 Miklu seinna (1625),
skrifar Christian Friis kanslari Arngrími og biður hann
að útvega sér rit um sögu Noregs. Fyrir þessi störf sín
fékk Arngrímur árleg afgjöld af Ilallbjarnareyrarjörðum.
Á þenna hátt gat Arngrímur náð i mörg handrit, sem
hann notaði við ritstörf sín; líklega hefir Arngrímur sent
einhver islenzk handrit til Danmerkur, en þó hefir hann
víst varla látið mjög mörg af hendi rakna. Hinn ágæti
clanski vísindamaður OIi Wonn (f. 1588, d. 1654) vakti
áhuga manna á fornfræði í Danmörku; hann hafði hið
mesta álit á Arngrími, hafði fræðzt mikið á ritum hans
og skrifaðist lengi á við hann, og leitaði upplýsinga hjá
honum um ýmislegt, er snerti sögu, fornfræði og rúnir.
í bréfi til síra Jóns Árnasonar i Vatnsfirði talar Worm
um lát Arngríms og um þá aðstoð, sem hann hafi veitt
sér; segir Worm, að löngunin til þess að fást við
forn-fræði, hafi dofnað mikið hjá sér, síðan Arngríms missti
við, en hann segist treysta íslendingum til að halda
á-fram i þessa stefnu, einkum Brynjólfi biskupi Sveinssyni.2

J) Maynus Ketilsson: Forordninger og aabne Breve II., bls.
206-207.

2) Olai Wormii et ad eum doctorum virorum epistolæ. Hafniæ
1751, bls. 1102.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 14:45:09 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/landfraed/1/0245.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free