Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
[243
lægt Heklu eru brennisteinsnámur og er brennisteinninn
hér um bil hin eina verzlunarvara ibiíanna og með
hon-um borgar landið skatt sinn; Islendingar selja
kaup-mönnum brennistein fyrir lítið verð og flytja þeir hann í
heilum skipsförmum til útlanda. Þegar Hekia ólmast
mest, drynur hún eins og hræðiiegar þrumur, þeytir úr
sér stórum björgum, gýs brennisteini og ösku svo
mik-illi, að hún þekur iandið i kring svo eigi. er hægt að
búa í 20 mílna fjarlægð. Gjárnar gleypa þá lifandi, er
viija grennslast eptir eðli brunans og þvi nálgast tjaliið;
gjárnar eru margar og svo huldar ösku, að enginn
get-ur varazt þær nógu vel.1
Pétur PallacUus, hinn alkunni Sjálandsbiskup, getur
um trúna á helvíti i Heklu á miðri 16. öld og i sálmum
frá 17. öld er einnig getið um pisiarstaðinn i Heklu,2
þesskonar hugmyndir hafa jafnvel komizt inn i danska
alþýðutrú og hafa til skamms tima jafnvel haldizt viðar
í útiöndum.3
í landfræðissögunni hér að framan (bls. 59) hefi eg
að tilvisun K. Maurer’s nefnt handrit af Solinus frá 13.
öid, þar er íslands getið á þessa leið: »Yslande.
Hafís-inn á þessari eyju rekst saman og kviknar þá í honum
af sjálfu sér, og þegar kviknað er í honum, brennur
hann eins og tré. Hér eru vel kristnir menn, en á
vetr-um þora þeir ekki að fara út úr neðanjarðarholum
sin-um sakir hins mikla kuida. En fari þeir samt út,
níst-ast þeir svo af kulda, að þeir upplitast af frostbóigu, svo
að þeir verða eins og holdsveikir menn. Ef.þeir snýta
sér, þá dettur af þeim nefið og kasta þeir því frá sér
með sjálfum hornum«.4
1) Georgii Agricolce de ortu et cansis subterraneorum lib V.
o. s. frv. Basileæ 1516. Fol., bls. 35, 116, 119, 157—58, 163, 226.
2) Finnur Jónsson: Historia ecclesiastica Islandiæ II. bls.
694. Klausturpósturinn IV. 1821. bls. 42—46.
3) K. Maurer í Zeitscbr. d. Yereins f. Volkskunde 1894 bls.
264—265.
4) Archiv der Gesellschaft fiir altere deutsche Geschichtskunde.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>