- Project Runeberg -  Landfræðissaga Íslands / I. /
248

(1892-1904) [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

[248

austur af íslandi, milli þess og Noreg3. Island er með
svipaðri gerð á uppdrætti, sem geymdur er i Brtissel i
handriti af Ptolemeus frá árunum 1480—1485,1 eins í
Ptolemeus útgáfunni í Róm 15072 og víðar

Á Zrtow-kúlunni, sem gjörð er 1493, eru Isiandia og
Tile tvær stórar eyjar fyrir vestan Noreg.3 Á korti frá
15. öld, sem gevmt er í »Bibliotheca Ambrosiana« í Mil-

r

ano4, heitir Island Fixlanda og sýnist þessi Fixlanda vera
frummvnd til Frislanda á Zeno-kortinu. Zeno hefir að
eins tekið ýms færeysk nöfn frá Olaus Magnus og
auk-ið þeim inn i, en svo auk þess sett uppdrátt Olaus Magn-

r r

usar af Islandi á sitt kort. Ymsir fleiri uppdrættir eru
með svipaðri gerð; á kortum eptir Bartolomeus Olives
(1584) og Matteo Prunes (1586) heitir Island Frixlanda.5
Á korti einu frá byrjun 16. aldar, sem geymt er í París,6
eru engin nöfn á landinu, en þar er þessi klausa
skrif-uð: »Þessi ey er full af fjöllum og nærri alltaf stirðnuð
af snjó og klaka, hún heitir eiginlegu nafni Islandia, en
er á latinu kölluð Thile, hún liggur mjög langt frá
Bret-landi til norðvesturs. Þar er sagt, að lengstir dagar séu
22 stundir eða meir og mjög stuttar nætur, af því eyjan
er svo langt frá miðjarðarlinu, og er mælt, að hún sé
lengst þaðan af öllum löndum. Sakir hins kalda og
ó-stöðuga loptslags fæst þar enginn annar matur en fiskur
þurkaður við kulda. Fisk þenna greiða eyjarskeggjar
Englendingum i stað peninga, sem þeir ekki eiga, fyrir

1) Les monuments de la géograpliie des bibliotheques de
Belgique Carte de l’Europe 1480—85 (4 cartes en 8 feuilles). Texte
explicatif par Ch. Ruelens. Bruxelles.

2) Nordenskiöld: Facsimiie-Atlas, bls. 27.

3) Sama rit, bls. 73 og 74.

4"» Bidr8g till Nordens aldsta kartograíi utgifna af svenska
sallskapet för Anthropologi och Geographi. Stockholm 1892. tab. 5.

5) Sama rit, tab. 7 og 8.; sbr. K. Kretschmer: Die Entdeokung
Amerikas. Berlin 1892. Atlas. tab. 4. Olives (1514) Prunes (1553).
Á korti Aloysius Cesanis 1574 er bæði Fixlanda og Ixlanda (s. st.
tab. 28) tvö sérstök iönd.

6) Sama rit, tab. 6.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 14:45:09 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/landfraed/1/0262.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free