- Project Runeberg -  Landfræðissaga Íslands / I. /
256

(1892-1904) [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

[256

teiknað kort sitt á skakkt stiganet, hefði hann vitað betur

t

og hefði hann sett hnattstöðu Islands rétta á sitt kort
eptir vissri mælingu, er mjög ólíklegt, að þeir Vedel,
Mercator og Ortelius hefðu breytt þvi aptur.

A korti Orteliusar úir oggrúirsjórinn kringum ísland
allur af skrimslum, það eru flest afskræmislegir hvalir
og eru sumar myndirnar likar hvalamyndum Jóns lærða;
i Þorlákshafnarflóa eru tvö naut að vaða i sjó út; við
Langanes eru ótal hafísjakar að reka suður með, á þeim
eru fjölda margir birnir, þeir eru aiiir mógráir á iit en
ekki hvitir; þar sést og mikill rekaviður í sjónum fyrir
sunnan isinn og hvaisaukakögglar syndandi; er þetta alit
tekið eptir uppdrætti Olaus Magnusar. Á kortinu sjálfu
eru margar klausur og fáeinar myndir. Fyrir sunnan
Eyjafjallajökui eru kýr á beit og eru kallaðar «sækýr»,
i klettum fyrir ofan eru hvítir fálkar og hrafnar. Þar
er Hekla logandi og stendur skrifað við hana «Hekia er
ofurseld sifelldum gosum og snjóum og þeytir úr sér
stein-um með hræðilegu öskri». Á sléttlendinu fyrir austan
Þjórsá stendur: «hér eru svo fljótir hestar, að þeir hlaupa
20 mílur i einum spretti». í fjöllunum við Lómagnúp
eru myndir af tóum, sem bíta hver í skottið á annari og
þar stendur skrifað: «kænleg veiðiaðferð refanna til að
finna og ræna fuglahreiður». Við Lagarfljót stendur: «í
þessu vatni er ormur af óvanalegri stærð, skaðlegur
eyj-arskeggjum, hann birtist fyrir minnisverð tíðindi».
Kipp-korn suður af Mývatni stendur: «ágætustu
brennisteins-námur» og er hér eflaust átt við Fremrinámur (ekki
Hiíðarnámur), enda sóttu menn á 16. öld brennisteininn
einmitt þangað. Suður af Hólum i Hjaitadal stendur:
«menn, hundar, svin og kindur undir sama þaki». Uppi
af Stafholti í Mýrasýslu nálsegt Baldjökli er ölkelda, þar
stendur: «ölkelda, sem einusinni flutti sig sakir ágirndar
húsbónda sins^.1 Fyrir vestan Borgarfjörð stendur: «gjár,

1) Það hefir til skamms tima verið alþýðutrú,að ölkeldur,
hver-ar og laugar ílyttu sig af ýmsum orsökum, t. d. ef saklauss manns
blóð rann í þær o. s. frv. (sbr. Andvari XVII. bls. 45—46). Enn

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 14:45:09 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/landfraed/1/0270.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free