- Project Runeberg -  Landfræðissaga Íslands / I. /
258

(1892-1904) [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

[258

Almannafljót, svo var það kallað í fornöld, en eptir kort-

inu má ætla, að nafn þetta hafi enn verið notað á 16.
öld.

Allir hinir betri iandfræðingar fara eptir korti
Guð-brands biskups Þorlákssonar eptir að það kom út, þó
uppdrátturinn bjagist nokkuð hjá þeim sumum. A korti
eptir Villem Barents 1598 er kort Guðbrands biskups
auðsjáanlega iagt til grundvallar. Landið er þar iangt
og mjótt og vogskorið eins að sunnan og ýms nöfn af
uppdrætti Guðbrands hafa verið sett á þetta kort
frem-ur af handahófi.1 Kortin eptir Eall fl605) og Gatonbe
(1612), P. Menda (1621), Purchas (1625), J. Speed (1627)
o. m. fl. styðjast að þvi er Island snertir lika við
upp-drátt þeirra Orteliusar, en á seinni kortum t. d. eptir
Joris Carolus (1634), G. C. Flander (1636, 1642, 1649), Joh.
Mejer (1652), Eendrick Donker (1669), G. Sanson (1667,
1669) o. fl. eru sýnilegar framfarir, hvað lögun landsins
snertir. Sumir, sem gáfu út kort um aldamót 16. og 17.
aldar og nokkru seinna, hafa þó auðsjáanlegalítið eða ekk-

r r

ert vitað um hina nýju uppdrætti af Islandi. A korti
eptir Cornelius Wytfliet (1597) gengur mikill fjörður
suð-vestan i landið og á nesinu fyrir sunnan standa nöfnin
Ontwertnes (Öndverðarnes) og Stap (StapiJ; þar eru og

r

nokkur flciri nöfn ekki mjög fjarri lagi.2 A korti Richard
Eacluyts (1599) er ísland sporöskjulagað og ber keim af
Doniskortinu og á þvi eru ýms forn nafnaskrípi3. A korti
eptir Matthias Quaden (1608)4 er ísland skakkur
ferhyrn-ingur með nokkrum víkum að sunnan og austan, við
suðurströndina er nafnið Islandt, við norðurströndina
nafnið Thule, þar eru engin önnur nöfn. Kort Resens5

]) Beschryvinge van de drie seylagien door de Hollanders
ge-daen an de noordsyde van Norweghen, Moscovia, Nova Sembla,
en de door de Weygats door Willem Barents 1508; útg. af C. L.
Brinkman. Amsterdam.

2) Nordenskiöld: Facsimile-Atlas, tab. 51.

3) Nordenskiöld: Facsimile-Atlas, tab. 50.

4) Nordenskiöld: Facsimile-Atlas, tab. 49.

5) Medelelser om Grönland IX. tab. 1.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 14:45:09 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/landfraed/1/0272.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free