Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
210
meö þvi frá Reykjavík, en einsog kunnugt er kviknaði í skipinu
fyrir utan Revkjanes og brann það til kaldra kola1 og mikill
fjárhlutur, en menn björguðust i skipið »Orion«, sem hafði
Jagt út um sama leyti. I bruna þessum missti Hooker alla
i
náttúrugripi, er hann hafði safnað á Islandi, og nokkuð af
dagbókum sínum og uppteiknunum. 4. september lagði
Hooker aptur á stað með herskipinu »The Talbot* og 20. s.
m. náðu þeir höfn á Skotlandi eptir mjög harða útivist.
í bók Hookers er ekkert um jarðfræði eða landafræði
Islands sem þýðingu hefir, en allmikió um grasafræði einkum
þó um mosa og skófir, en þá voru hiuar lægri jurtir á
Is-landi injög lítt kunnar. Bókin byrjar með löngum inngangi
uin sögu Islands. stjórnarfar og annað þvilikt og seinast i
fyrsta bindi eru yfirlits hugleiðingar um dýr og jurtir á
Is-landi. I öðru bindi er safn ýmsra ritgjörða: um
stjórnar-byltinguna á íslandi 1809, um eldfjöll á Islandi, og er þar
útlegging á riti Magnúsar Stephensens um Skaptáreldinn
1783, þá eru lofkvæði Islendinga um Sir Joseph Banks og
Jones kaptejn, listi yfir íslenzk grös settur saman eptir
feróa-bók Eggerts og Bjarna og náttúrusögu Mohrs með nokkrum
viðaukum eptir jurtasöfnum Sir G. Mackenzies og Sveins
Pálssonar og aptast er ritgjörð um verzlun á Islandi. Af bók
þessari gátu útlendingar i þá daga fengið allmikinn fróðleik
um Island þó ekki væri þar margar nýungar i visindalegu
tilliti.
r t
Arið eptir kom annar enskur fræðimaður til Islands
Sir George Steuart Mackenzie, hann koni til Reykjavíkur
7. maímánaðar 1810; Mackenzie var rikur jarðeigandi
skotsk-ur og voru með honum tveir vísindamenn Dr. Henry
Hol-land og Richard Bright:2 var það helzt ætlun þeirra að skoða
Saga Jörundar Hundadagakonungs bts. 91—94.
J) Sir George. Steuart Mackenzie (1780—1848). var af rikum ættum
og tók við landeignum föður síns er hann dó 1796. Mackenzie lagði
helzt fyrir sig steinafræði, hann sýndi með titraunum að kolaefni væri
í demöntum og að stál mætti gjöra með því að liita jáin saman með
demöntum. Siðar varð Mackenzie forseti náltúrufræðisdeildar hins
skotzka visindafélags. fór til íslands 1810 og safnaði miklu af steinum,
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>