- Project Runeberg -  Landfræðissaga Íslands / III. /
289

(1892-1904) [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

289

indunum, sem af þeim ieiddi. Mikill hluti af sjóö þessum var
notaður á allt annan hátt en upprunalega haföi verið til
ætl-azt, og varð út úr því ýmislegur ágreiningur og rekistefna á
hinum fyrstu þingum og siðar.1

Mæiingamenn höfðu í fvrstu 500—550 rd. í árslaun, en
þau voru síðar hækkuð upp i 600 rd. og svo í 700 rd.. auk
þess fengu þeir endurgoldinn allan ferðakostnað og l1/*— 2
rd. í fæðispeninga á dag meðan þeir voru á feröalagi;2^ þeir
fengu einnig sérstakt fé til þess að kaupa hesta fyrir og 40
rd. árlega upp í hestfóður, ennfremur tjöld3 og ailan útbúnað
annan, og er þeir fóru á stað í fyrsta sinn, fékk hver þeirra
3—400 rd. til almennrar útgjörðar; hin fyrstu 5 eða 6 ár fékk
hver lautenantanna 100 rd. ár hvert til kaups fyrir danskan
þjón, sem þeir höfðu til fylgdar sér, en þessi þjónusta lagðist
niður. er fram liðu stundir.4 Hinn beini feiðakostnaður hvers
þeirra mun hafa verió 3—400 rd. árlega og er hestakostnaður
þá ekki talinn með; mest fé gekk til vörðubygginga á
fjalla-tindum, og létu þeir opt byggja margar á sumri, Wetlesen
lét t. d. 1806 byggja 120 vörður á Vestfjörðum.5 Hin fyrstu

’) Lovsamling for Island XIII. bls. 119—124, XVIII. bls. 70-72.
205—207, 304-305. 313—316, 578. Alþingistíðindi 1845 bls. 78-81;
1855 bls. 581. 795—796; 1857 bls. 692—695; 1859 bls. 1294—1297;
1861 bls. 1425-1428 og víðar.

J) Sumir lautenantarnir héldu nokkrum hluta launa sinna við
her-inn og mun óhætt að telja laun hvers þeirra með öllum hlunnindum að
öllum jafnaði 800 — 1200 rd. á ári, og voru það góð laun í þá daga,
enda mundi ekki hafa verið hægt að fa menn i slika útlegð (sem álitið
var) og í svo örðugar og hættulegar ferðir nema fyrir háa borgun.

3) Arið 1801 voru keypt 6 tjöld fyrir mælingamenn á Islandi og
kostuðu þau 479 rd. 85 sk.

4) Árið 1805 varð hinn danski þjónn Ohlsen’s veikur á ferðalagi og
varð að flytja hann til Eyrarbakka með miklum kostnaði; þá réði Ohlsen
tíl sin þjón Ludvigs amtmanns Erichsen. er hét Knud Absalonsen,
borg-aði honum 3 mörk á dag auk fæðis, og lét hann hafa hest og fria ferð
til Kaupmannahafnar um haustið. (Bréf dags. 15. janúar 1805).

s) Ferðakostnaður Frisak’s 1806 var 336 rd„ Wetlesen’s s. á. 321 rd.;
ferðakostnaður Frisak’s 1813 var eptir silfurverði 428 rd., 1814 315 rd..
ferðakostnaður Scheel’s 1814 2179 rd. að nafnverði og 1815 2225 rd.
Seinustu árin urðu þeir Frisak og Scheel að borga mikið af fylgdakaupi

15

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 14:45:37 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/landfraed/3/0297.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free